Tap á Valbjarnarvelli

KA sótti ekki gull í greipar Þróttara á Valbjarnarvelli í kvöld. Þróttarar höfðu sigur 1-0 og eru nú komnir með 10 stig í öðru sæti á eftir Skagamönnum sem verma sem fyrr toppsætið með þrettán stig eftir stórsigur á Bí-Bolungarvík 6-0. KA situr í fimmta sæti deildarinnar með sjö stig.

Það var Hjörvar Hermannsson sem skoraði mark Þróttara eftir aðeins sjö mínútur og þar við sat.  Annað tap KA-manna í röð staðreynd.

Nú er ekkert annað að gera en að rífa sig upp og gefa í. Næsti leikur er strax á föstudaginn kl. 18.15 gegn Fjölni úr Grafarvogi, sem gerði í kvöld jafntefli á gervigrasinu í Hafnarfirði gegn Haukum. Leikurinn við Fjölni á föstudaginn verður á Þórsvelli, sem kemur til af því að framkvæmdir við stúku Akureyrarvallar koma í veg fyrir að unnt sé að hleypa leikmönnum, dómurum og áhorfendum inn á vallarsvæðið.