Tap gegn Haukum

Haukar úr Hafnarfirði gerðu góða ferð norður í dag og fóru með öll þrjú stigin sem í boði voru í viðureign þeirra við KA í Boganum. Haukarnir komu mun grimmari til leiks í fyrri hálfleik og uppskáru tvö mörk - annars vegar með skalla eftir aukaspyrnu og hins vegar úr vítaspyrnu sem dæmd var á Sandor Matus.

KA-liðið var meira og minna áhorfendur í fyrri hálfleik og ógnaði aldrei marki gestanna. Í síðari hálfleiknum voru strákarnir mun ákveðnari, en það dugði ekki til að koma boltanum í netið. Niðurstaðan því 0-2 tap gegn Haukunum.

Það þýðir ekkert að hengja haus þrátt fyrir þetta tap því stutt er í næsta leik, sem verður á Valbjarnarvelli nk. þriðjudag kl. 19.30. Allir KA-menn á höfuðborgarsvæðinu er hvattir til að mæta og styðja strákana. Næsti heimaleikur verður síðan annan föstudag.