Þorgrímur Þráinsson hélt fyrirlestur fyrir yngri flokka

Þorgrímur Þráinsson rithöfundur og fyrrum fótboltakappi hélt í dag fyrirlestur í KA-heimilinu fyrir 3. og 4. flokk karla og kvenna. Meginþemað var forvarnir og svo fór hann út í ýmis atriði tengd fótboltanum og lífinu sjálfu enda þessi aldur sem krakkarnir eru á mjög erfiður og nauðsynlegt að halda krökkunum við efnið svo þau fari ekki af sporinu.

Mjög góð mæting var á fyrirlesturinn en tæplega 100 krakkar voru mættir og hlustuðu af mikilli athygli á Þorgrím.