Þórhallur Ási gengur í raðir KA

Velkominn í KA Þórhallur!
Velkominn í KA Þórhallur!

Þórhallur Ási Aðalsteinsson hefur samið við knattspyrnudeild KA út keppnistímabilið 2028 en Þórhallur kemur til félagsins eftir tímabilið frá Hetti/Huginn þar sem hann mun fá dýrmæta reynslu í 2. deildinni í sumar. Þar er hann nú þegar kominn á blað þar sem hann hefur skorað 1 mark í fyrstu 3 leikjunum.

Þórhallur Ási er 17 ára skemmtilegur sóknarmaður sem hefur gott markanef. Hann hefur vakið verðskuldaða athygli í vetur fyrir frammistöðu sína með Hetti/Huginn þar sem hann skoraði ófá mörkin. Í umfjöllun fyrir tímabilið var hann nefndur sem sá leikmaður sem fólk ætti að fylgjast með hjá Hetti/Huginn í sumar.

KA og Höttur/Huginn hafa átt í mjög góðu samstarfi undanfarin ár og er einn lykilhluti samstarfsins að ungir og efnilegir drengir frá Hetti/Huginn hafa komið til Akureyrar til æfinga og spilað leiki með KA. Þórhallur hefur verið í þeim hópi og staðið sig mjög vel líkt og aðrir sem hafa komið.

Við hlökkum til að fá Þórhall Ása til Akureyrar og hjálpa honum að taka næstu skrefin á ferlinum, við þökkum á sama tími Hetti/Huginn fyrir góða samvinnu og bjóðum Þórhall Ása velkominn í KA.