Þróttur - KA í dag!!!!

KA fer suður í dag og fer þar í heimsókn á Valbjarnarvöll, heimavöll Þróttara. Leikurinn hefst 19:30 og eru allir hvattir að mæta sem tök hafa á. 


KA-strákarnir eru væntanlega fullir tilhlökkunar fyrir þennan leik til að sýna stuðningsmönnum að leikurinn gegn Haukum var slys, stórslys. Strákarnir virkuðu frekar lánlausir í þeim leik en allir vita þó að þetta er hörkulið og karakterinn er góður og svona lagað gerist vonandi ekki aftur.

Þrótturum var fyrir mót ekki spáð góðu gengi í vor,  en þeir hafa hins vegar byrjað mótið ágætlega og eru í 5. sæti deildarinnar með 7 stig líkt og KA og tvö mörk í plús líkt og KA.

Allir á völlinn klukkan 19:30 og styðja við bakið á okkar mönnum. 

ÁFRAM KA