Steindór Gunnarsson var vakinn og sofinn yfir velferð KA. Hann var KA-maðurinn,sem var alltaf boðinn og búinn að leggja hönd á plóg. Einkum naut knattspyrnan hans stuðnings og starfsorku. Knattspyrnudeild KA hefur misst einn af sínum dyggustu stuðningsmönnum og velunnurum.
Dorri lagði KA lið með einum eða öðrum hætti lið í áratugi. Alltaf tilbúinn til að skjótast með strákunum í útileiki, hvert á land sem er. Og alltaf tilbúinn að afla fjár fyrir félagið. Enginn fór í fötin hans í þeim efnum. Dorri var vel tengdur, eins og sagt er. Þekkti annan hvern mann og ríflega það. Þessi tengsl nýttust honum vel í fjáröflun fyrir KA. Inn á ófáar forstjóraskrifstofurnar fór hann og sagðist ekki fara út fyrr en tryggt væri að viðkomandi fyrirtæki styrkti fótboltann í KA um nokkrar krónur. Og jafnan snarvirkaði þessi herfræði Dorra. Að afla fjárstyrkja, selja ársmiða eða auglýsingar í blöð eða símaskrána. Þar var Dorri á heimavelli.
Dorri þekkti vel til víða um land. Og ófáum fróðleiksmolunum um sveitir landsins gaukaði hann að KA-strákunum í ferðum þeirra í útileiki. Hann var sagnamaður. Sögurnar eftirminnilegar og tilsvörin óborganleg. Steindórssögur myndu fylla veglega bók og nú þegar Dorri hefur lokið þessari jarðvist lifir minning hans í gegnum allar sögurnar sem af honum hafa varðveist og Dorri var reyndar sjálfur duglegur að rifja upp.
Knattspyrnan í KA á Dorra svo óendanlega mikið að þakka. Hann var lítt gefinn fyrir að vera í fremstu víglínu. Hann var maðurinn á bakvið tjöldin. Einn af þessum ómissandi hlekkjum í keðjunni. Skarð hans verður vandfyllt, en eftir sem áður verður flautað til leiks og gulbláir KA-menn skokka inn á völlinn og glíma við verðuga andstæðinga. Boltinn mun áfram rúlla og lífið heldur áfram.
Aldraðri móður Dorra, Guðrúnu Sigbjörnsdóttur, systkinum hans, Kristínu og Gunnari og öðrum ástvinum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Hvíl í friði, góði vinur. Takk fyrir alla eljuna og dugnaðinn í þágu okkar allra í Knattspyrnufélagi Akureyrar.
F.h. knattspyrnudeildar KA,
Bjarni Áskelsson
Óskar Þór Halldórsson