KA og Þór hafa um árabil staðið saman að rekstri kvennaknattspyrnu á Akureyri í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna. Samstarfssamningur félaganna rann sitt skeið á enda 15. október sl. og hefur KA tekið þá ákvörðun að endurnýja hann ekki.
Að baki ákvörðuninni liggur sú framtíðarsýn KA að kvennaknattspyrna verði hornsteinn í starfi félagsins og að stúlkur sem hefja æfingar hjá KA fái tækifæri til að leika undir merkjum félagsins alla leið upp í meistaraflokk.
Frá og með næsta tímabili mun KA tefla fram eigin liðum í 3. flokki, 2. flokki og meistaraflokki kvenna. Félagið lítur björtum augum til þessa nýja kafla og hlakkar til að byggja upp öflugt, faglegt og skemmtilegt kvennastarf sem KA-fólk getur verið stolt af.
KA þakkar Þór fyrir gott og gifturíkt samstarf í gegnum tíðina og óskar félaginu alls hins besta.