Srdjan Tufegdzic skrifaði í dag undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild KA og tekur því við sem nýr þjálfari liðsins en Túfa ætti að vera öllu KA fólki vel kunnugur.
Túfa kom upprunalega til KA sumarið 2006 sem leikmaður og lék yfir 100 leiki í deild og bikar með liðinu áður en hann þurfti að leggja skóna á hilluna sumarið 2012 vegna meiðsla, þá aðeins 32 ára gamall. Túfa sýndi strax mikla leiðtogahæfileika og kom sér fljótlega inn í þjálfun yngriflokka hjá KA eftir komuna norður þar sem hann gerði gríðarlega vel.
Eftir að hann lagði skóna á hilluna kom hann inn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks en sama ár (2012) lauk hann UEFA-A prófi í þjálfun. Samhliða því að koma inn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks hélt Túfa áfram að sinna yngriflokkastarfinu. Í ágúst 2015 tók hann loks við sem aðalþjálfari KA liðsins og fór liðið á gríðarlegt flug undir hans stjórn og munaði minnstu að sæti í efstudeild yrði tryggt þrátt fyrir erfiða stöðu í toppbaráttunni er hann tók við stjórninni.

Á sínu fyrsta heila tímabili sem aðalþjálfari vann KA gríðarlega sannfærandi sigur í næstefstu deild og tryggði sér loks sæti í deild þeirra bestu eftir 12 ára fjarveru. KA var 16 stigum fyrir ofan liðið í 3. sæti og 9 stigum fyrir ofan Grindavík sem endaði í 2. sæti og fór upp með KA liðinu. Undir stjórn Túfa kom KA liðið af miklum krafti inn í deild þeirra bestu þar sem liðið endaði í 7. sæti. Sumarið 2018 var liðið einnig aldrei í hættu á að sogast niður í fallbaráttu og varð niðurstaðan aftur 7. sætið.
Leiðir skildu að loknu sumri 2018 og í kjölfarið stýrði Túfa liði Grindavíkur og svo Val sem aðstoðarþjálfari. Árið 2022 tók hann við sem aðalþjálfari liðs Östers í Svíþjóð en þar var hann nálægt því að koma liðinu upp í efstudeild. Síðar tók hann við hjá Skövde AIK í Svíþjóð en sneri loks aftur til Íslands árið 2024 og tók við sem aðalþjálfari Vals þar sem hann stýrði liðinu til 2. sætis í Bestudeildinni sem og í bikarúrslit. Hann hélt aftur utan er hann tók við sænska liðinu IFK Värnamo í fyrra en hætti þjálfun þess fyrr á árinu og snýr nú loks aftur heim til Akureyrar.
Túfa hefur lokið UEFA Pro þjálfaragráðunni en það er æðsta gráðan sem þjálfarar í knattspyrnuheiminum geta sótt sér.
Það eru gríðarlega jákvæðar fregnir að Túfa sé nú mættur aftur til KA en hann er gríðarlega metnaðarfullur og leggur sig ávallt allan fram við að ná markmiðum sínum. Túfa er ákaflega vel liðinn innan félagsins og mótaði hann ansi marga iðkendur, bæði stráka og stelpur, innan félagsins á sínum tíma. Við treystum honum svo sannarlega til þess að stýra KA aftur upp í deild þeirra bestu og hlökkum mikið til að vinna aftur með þessum frábæra karakter.