Lára (nr 16) og stelpurnar í U-17
KA-stelpan Lára Einarsdóttir og stöllur hennar í U-17 landsliðinu spiluðu sinn síðasta leik í dag í milliriðli EM í
Póllandi. Mótherjarnir voru Svíar og voru íslensku stelpurnar ekki í vandræðum með að landa enn einum sigrinum. Lára spilaði allan
leikinn á miðjunni og stóð sig með sóma. Leikurinn fór 4-1 og skoruðu Sigríður Lára Garðarsdóttir (ÍBV), Guðmunda
Brynja Óladóttir (Selfoss) og Aldís Kara Lúðvíksdóttir (FH) mörkin.
Ævintýralegur árangur U-17 liðsins hefur ratað í fréttir síðustu daga en liðið er komið í undanúrslit EM.
Mótherjar Íslands verða Evrópumeistarar Spánverja en í hinum undanúrslitaleiknum mætast væntanlega Þjóðverjar og Frakkar.
Leikið verður í Nyon í Sviss 28.-31. júlí.
Ísland hefur spilað sex leiki í keppninni. Allir hafa unnist og er markatalan 37-2. Stelpurnar koma til landsins á föstudag og taka þá við
hefðbundnar æfingar með félagsliðum þeirra.