Það var ákjósanlegt veður til knattspyrnuiðkunar á miðvikudagskvöldið þegar Þóroddur Hjaltalín Jr. flautaði til
leiks, nokkuð milt og skýjað en sólin lét þó sjá sig öðru hvoru.
Myndaveisla - Smella hér
KA 3-2 ÍR
0-1 Kristján Ari Halldórsson ('2)
1-1 David Disztl ('18)
2-1 David Disztl ('31)
2-2 Karl Gunnar Björnsson ('34)
3-2 Steinn Gunnarsson ('90)
LIÐ KA:
Sandor (F)
Janez – Þórður - Haukur Hi. - Kristján P.
Tufa – Davíð Rúnar
Haukur Heiðar - Dean M
Andri Fannar
David Disztl
Varamenn: Steinn G (’75), Orri Gústafsson,(’83 Magnús Blöndal,) Davíð Jón, Jakob
Stuðningsmenn KA létu vel í sér heyra frá fyrstu mínútu og ÍR-ingar fjölmenntu einnig á pallana þannig að skemmtileg
stemmning myndaðist á Akureyrarvelli.
Fólk var enn að koma sér fyrir í stúkunni þegar fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós og voru það gestirnir úr Breiðholtinu sem voru
að verki. Kristján Ari Halldórsson slapp einn inn fyrir vörn heimamanna, sem hefði mátt tala betur saman, skeiðaði inn í teiginn hægra megin og
setti boltann fram hjá Sandor í markinu. 0-1. KA-menn virtust nokkuð slegnir út af laginu við þetta og oft gerðu þeir sig seka um einbeitingarleysi
í vörninni en þó náðu ÍR-ingar ekki að ganga á lagið.
Heimamenn girtu sig þó fljótlega í brók og eftir rúman stundarfjórðung náði David Disztl að jafna metin með góðum
skalla eftir fasta fyrirgjöf frá hægri. 1-1.
Eftir um 30 mínútna leik var David svo aftur á ferðinni þegar hann slapp einn í gegnum vörn gestanna og skoraði með góðu skoti fram
hjá Þorsteini í markinu.
ÍR-ingar svöruðu að bragði með skalla Karls Gunnars Björnssonar. 2-2.
Þannig stóðu leikar í hálfleik.
KA-menn stjórnuðu leiknum framan af í seinni hálfleik án þess þó að skapa sér einhver alvöru tækifæri.
Breiðhyltingar hresstust þegar leið á leikinn og lágu nokkuð á vörn KA-manna þegar skammt var til leiksloka. KA-menn gerðu nokkrum sinnum tilraun
til hraðrar sóknar og það var upp úr einni slíkri sem sigurmark leiksins kom. Varnarmaður ÍR braut þá af sér á hægri
vængnum og aukaspyrna var dæmd. Andri Fannar tók spyrnuna og lyfti boltanum á fjær þar sem Steinn Gunnarsson setti hann í netið. 3-2.
Það var margt jákvætt við spilamennsku KA í kvöld. Liðið virtist hafa þjappað sér vel saman og menn voru að leggja sig vel fram
fyrir hvorn annan og klúbbinn. KA-menn náðu oft upp fínu spili á aftari hluta vallarins en það virtist ekki vera mikil hugmyndgleði fram á
við. Spurning hvort við megum við því varnarlega að setja framherja fyrir framan David Disztl?
Næsti leikur KA er á heimavelli gegn Njarðvík annan laugardag og næsti leikur á höfuðborgarsvæðinu er gegn HK föstudaginn 13.
ágúst.
Mætum öll og klæðumst gulu!
Höfum gaman, syngjum saman!
Áfram KA!