Umfjöllun: Nýtt KA-lið mætti til leiks!

Elvar Páll fagnar sigurmarkinu
Elvar Páll fagnar sigurmarkinu
KA fékk Gróttu í heimsókn og það var greinilegt að veðurguðirnir voru ánægður með að sjá leikinn á Akureyrarvelli því þeir blessuðu okkur með frábæru veðri. Talsvert var af fólki á leiknum og það fékk svo sannarlega að sjá KA-menn endurnærða eftir 2 vikna frí og 4 tapleiki í röð, því þeir stjórnuðu leiknum frá B-Ö, Grótta var sterkari fyrstu 5 mínúturnar en síðan sáust þeir ekki í sókn.


KA-menn urðu fyrir enn einu áfallinu fyrir leikinn þegar Boris Lumbana þurfti að draga sig úr hópnum vegna veikinda, áður voru þeir Andrés Vilhjálmsson, sem líklega spilar ekki meira á þessu ári, og Guðmundur Óli á meiðslalistanum.

En þá að leiknum sjálfum, þetta var ekki leikur margra opinna færa heldur einkenndist hann af mikilli baráttu.

Bæði lið lágu aftarlega til að byrja með en KA-menn færðu sig svo framar og sóttu á Gróttu, sem vilja oftast liggja til baka og beita eitruðum skyndisóknum en það gekk ekki upp í dag og var miðjuspil þeirra ekkert og Magnús Bernard, þeirra eitraðasti maður, komst aldrei í takt við leikinn.

Fyrsta alvöru marktilraunin leit dagsins ljóst eftir 15 mínútna leik þegar Elvar Páll Sigurðsson átti frábært skot í innanverða stöngina en inn vildi boltinn ekki og Gróttumenn stálheppnir, frábært skot hjá Elvari sem fór í fallegum boga og Kristján Finnbogason horfði bara á boltann.

KA-menn héldu áfram að vera með boltann og spiluðu fanta vel saman á köflum, það var svo á 40 mínútu þegar KA-menn fengu aukaspyrnu inn í miðjuboganum. Davíð Rúnar kom með langan bolta á fjær þar sem Dan Howell átti fastan skalla inn í teiginn og þar kom Elvar Páll eins og naut í nautaati og stangaði boltann framhjá 5 varnarmönnum Gróttu sem stóðu á línunni.

Eftir þetta hélt maður að Grótta myndi ætla að rífa sig upp og svo virtist vera þegar þeir fengu eina sókn en Matus Sandor var vel vakandi í markinu og varði vel.

Gróttumenn voru aðeins hressari í seinni hálfleik en í þeim fyrri en voru ekki líklegir, engin alvöru færi litu dagsins ljós en KA-menn voru mikið meira með boltann og félagarnir Haukur Heiðar og Hallgrímur Mar léku sér að varnarmönnum Gróttu út á kanti en vantaði herslumuninn að klára leikinn.

Slobodan Milisic aðstoðarþjálfari KA var svo rekinn upp í stúki eftir að þeim gamla var alvarlega misboðið eftir að dómari leiksins leit framhjá ljótri tveggja fóta tæklingu, Slobodan hefur aldrei verið þekktur fyrir langan kveikiþráð og það sýndi sig þarna, en hann hafði á réttu að standa.

Grótta beit aðeins frá sér á 85 mínútu þegar þeir fengu hornspyrnu og flottur bolti kom inn í og áttu þeir flottan skalla en Sandor var vel á verði og barst boltinn út fyrir teiginn og varði Sandor aftur skot sem kom í kjölfarið. Þetta var eina hættan sem skapaðist fyrir framan mark KA í leiknum.

Dómari leiksins flautaði til leiksloka og KA-menn hirtu langþráð og verðskulduð þrjú stig.

Svipmyndir úr leiknum koma inn á sunnudaginn! Viðtöl detta inn innan skamms