Umfjöllun og myndir: KA 0 - 4 KR

Sissi og Gunnar Örn í kröppum dansi
Sissi og Gunnar Örn í kröppum dansi
KA fékk vesturbæjarstórveldið KR í heimsókn sl. föstudagskvöld. Ljóst var að leikurinn yrði erfiður fyrir KA- menn enda eru KR-ingar virkilega vel mannaðir með menn eins og Bjarna Guðjónsson og Baldur Sigurðsson, svo tveir af mörgum öflugum liðsmönnum KR séu nefndir.

Í lið þeirra vantaði þó þrjá virkilega sterka leikmenn, þá Grétar Sigfinn Sigurðsson, Guðjón Baldvinsson og Kjartan Henry Finnbogason. En nóg af KR-liðinu!

Leikurinn var tvískiptur. Í fyrri hálfleik réðu KR-ingar ferðinni og virtist sem KA-menn bæru talsverða virðingu fyrir stjörnum þeirra. Á 18. mínútu komust KR-ingar yfir þegar Steinn Gunnarsson tapaði boltanum á miðjunni og Dofri Snorrason keyrði upp völlinn og setti boltann laglega í fjærhornið og staðan 0-1.

Á 30. mínútu bætti svo rauðhærði víkingurinn Baldur Sigurðsson marki við eftir góðan undirbúning frá Gunnari Erni Jónssyni sem lék á Ómar Friðriksson og sendi á fjær þar sem Baldur skoraði í autt markið.

Þrem mínútum síðar skoraði Ingólfur Sigurðsson þriðja mark KR eftir góðan undirúning enn og aftur frá Gunnari Erni sem vippaði boltanum af endalínunni á fjær þar sem Ingólfur mætti og hamraði boltann á lofti í gegnum þrjá varnarmenn KA sem stóðu á marklínunni og vörðu boltann, að þeir héldu, en aðstoðardómarinn flaggaði og taldi boltann hafa farið yfir línuna og staðan 3-0

Þannig stóðu leikar í hálfleik og komu KA-menn tvíelfdir til leiks í seinni hálfleik og áttu margar vel útfærðar sóknir. Ágúst Örn átti fínt færi á 60. mínútu þegar hann fékk boltann inn fyrir, en í þröngu færi skaut hann yfir. Þá átti Hallgrímur Mar skot í stöng.

Á 89. mínútu kláraði svo Torfi Ólafsson leikinn með fjórða marki KR eftir snarpa skyndisókn, en hann tók frákast af stönginni og lagði boltann í autt netið og þar við sat - 4-0 sigur KR staðreynd.

Myndir frá leiknum má finna hér en myndirnar tók Sævar Geir Sigurjónsson