Umfjöllun og viðtöl: Sannfærandi sigur á Þór

Howell skallar boltann í netið og kemur KA í 2-1
Howell skallar boltann í netið og kemur KA í 2-1

Það var einn og einn Akureyringur mættur í Bogann fyrr í kvöld þegar okkar menn hentust í stutta heimsókn yfir í 603. Mjölnismenn voru mættir með gjallarhorn og trommur og heyrðist vel í þeim allan leikinn en af KA- stuðningsmönnum var lítið að frétta nema að sjálfsögðu Hauki Jóhannss en hann kom stöku sinnum með sitt fræga “ ÁFRAM KAAA!!!!!” öskur sem löngum er orðið frægt á Akureyri og víðar.

Leikurinn byrjaði fjörlega og á fyrstu mínútu slapp David “hamborgari” Disztl í gegn en Sandor sá við honum. Þórsarar virkuðu sprækir fyrstu 10 mínúturnar en þá náðu KA menn í pappír og byrjuðu að skeina þeim. 

Andrés Vilhjálms hefur verið iðinn við kolann í vetur og hann slapp í gegn á 15. mínútu og afgreiddi boltann laglega í netið úr þröngu færi og KA-menn komnir í 1-0.

KA-menn voru þarna formlega komnir með leikinn í sinar hendur og héldu áfram, Haukur Heiðar átii flotta skiptingu yfir á Hallgrím sem lék á varnarmann Þórsara og átti skot en beint á Srdjan Rajkovic í marki Þórs, Hallgrímur náði svo frákasti en vippaði boltanum yfir markið úr erfiðu færi.

Þeir Guðmundur Óli, Davíð Rúnar og Elvar Páll sýndu af sér stjörnuleik í dag og gáfu ekki tommu eftir á miðjunni, í raun ekki gúmmíkúlu þar sem Þórsararnir áttu ekkert á miðjunni. Davíð Rúnar komst í hættulegt færi á 30. mínútu, eftir horn frá Hallgrími fékk Davíð frían skalla en skallaði beint á Srdjan á marki Þórs.

Guðmundur Óli átti síðan góða tilraun nokkrum mínútum síðar þegar hann vann boltann á miðjunni og hlóð í skot sem stefndi í "samúel" en Srdjan varði vel. Áfram héldu miðjumennirnir að stríða og í þetta skipti Elvar Páll sem slapp í gegn á 34. mínútu eftir flottan skalla innfyrir frá Daniel Howell, sem vann u.þ.b. óteljandi skallabolta í leiknum. Elvar Páll var sloppinní gegn og lét skotið ríða af svolítið snemma enda hundeltur af varnarmönnum, Srdjan varði í horn og upp úr horninu átti Andrés skalla rétt framhjá.

Eins og auðlesið er fyrir þann sem ekki var á staðnum, þá réðu KA-menn lögum og lofum á vellinum og voru mismunandi straumar sem komu af varamannabekkjum liðanna. Á meðan Gulli fór með faðir vorið yfir sínum mönnum fóru þjálfarar Þórs með línur úr frystiskistulaginu með Greifunum, sem annars er nokkuð gott lag en textinn er ekki til að hafa eftir hér.

Ekki var hægt að líta frá í nokkrar sekúndur hvað þá að skvetta úr vininum, slíkur var hamagangurinn og var hann mestmegnis í gangi austanmegin í húsinu, en þrátt fyrir leiðinda pælingar í mér hélt leikurinn áfram og Davíð Rúnar átti skalla framhjá aðeins nokkrum sekúndum eftir að Andrés skallaði boltann framhjá.  

Fyrir ykkur sem eruð að pæla í því, þá nei það var ekki spilað á eitt mark í fyrri hálfleik heldur fór leikurinn fram á tvö mörk,  leikmenn Þórs hafa væntanlega verið guðs lifandi fegnir þegar ágætis dómari leiksins flautaði til hálfleiks, enda virkuðu þeir svipað og 10 hauslausar hænur hlaupandi um völlinn. Enda hljóp Palli þjálfari Þórs inn í klefa með liðið og hefur væntanlega leitað að innstungu fyrir hárblásarann góða. KA-menn héldu sig hins vegar í Boganum og voru tilbúnir til leiks löngu áður en Palli næði að þurka hárið á öllum sínum leikmönnum.

Áður en seinni hálfleikur hófst var mínútu þögn til minningar um þá Steindór Gunnarsson KA-mann og Hrein Óskarsson Þórsara sem báðir létust fyrr í þessum mánuði.

Þórsarar mættu svipaðir til leiks í seinni hálfleikinn og þeim fyrri, Atli Sigurjónsson átti til að mynda skot utan teigs rétt yfir. Leikurinn jafnaðist aðeins út og sóttu liðin til skiptis, Gísli Páll Helgason slapp óvænt í gegn á 60. mínútu en að sjálfsögðu varði Sandor, sem fer trúlega langt með það að eiga flesta varða bolta einn á einn á landinu.

Á 66. mínútu fengu Þórsarar aukaspyrnu lengst utan af kanti. Atli Sigurjónsson tók spyrnunna og á einhvern ótrúlega klunnalegan hátt var staðan orðinn 1-1, en boltinn fór framhjá veggnum og lak bara í nærhornið og trylltust Þórsarar úr fögnuði, eeeeen Adam var síður en svo lengi í Paradís því tveim mínútum síðar tók kaninn Daniel Howell leikinn kverkataki og byrjaði á því að skora magnað skallamark eftir flotta sendingu fyrir frá Elvari Pál, en um var að ræða klassískan flugskalla.

Á 72. mínútu var Guðmundi Óla skipt af velli eftir magnaðan leik en kauði var á gulu spjaldi og aldrei að vita upp á hverju hann tekur. Inná kom Ágúst Örn sem átti heldur betur eftir að láta til sín taka, en hann fékk færi strax mínútu síðar, en skotvinkillinn ekki sá hagsæðasti og skotið varð laflaust og beint að marki Þórs.

Hraðinn hélt áfram og voru leikmenn ekkert að gefa eftir enda margt í boði ennþá, það sýndi Daniel Howell þegar hann kom KA í 3-1 á 82. mínútu með frábæru skoti frá vítateigshorni beint í fjærhornið eftir góðan undirbúning frá Ágústi Erni.

Þar með var tankurinn tómur hjá Þórsurum og fékk Hallgrímur Mar tækifæri í lokin til að fullkomna daginn en allt kom fyrir ekki þegar hann skaut himinnhátt yfir úr dauðafæri. Nokkrum andartökum síðar flautaði ágætis dómari leiksins til leiksloka og annar sigur KA-manna á Þór í röð staðreynd.

Það er deginum ljósara að Dan Howell var maður leiksins en hann vann eins og fyrr segir alla þá skallabolta sem í boði voru, barðist gífurlega vel og skoraði tvö falleg mörk. En í heildina á KA-liðið skilið hrós fyrir frammistöðuna, vörnin átti góðan leik og var ljóst að Hafþór og Sigurjón kunnu það vel að spila við hlið hvor annars að frátöldu einu atviku þegar Hafþór fékk brjálæðiskast og straujaði Sissa, en engin hætta skapaðist við þetta skemmtilega atvik. Einnig var miðjan alveg mögnuð og varamennirnir, Ómar og Ágúst, komu virkilega vel inn og allir voru til í að klára þetta Þórs -ið í eitt skipti fyrir öll. 

Ljóst er að stuðningsmenn beggja liða verða að bíða í talsverðan tíma eftir næsta nágrannaslag þar sem liðin spila ekki saman í deild næsta sumar, en þá sálma förum við ekki í hérna. 

 “Mjög góður sigur og við vorum að mínu mati betra liðið og 3-1 segir allt sem segja þarf. Þeir byrjuðu ágætlega og fengu sénsa í byrjun en eftir u.þ.b. 10 mínútur áttum við leikinn,” sagði Guðmundur Óli í viðtali eftir leik. “Við ætluðum að halda hreinu í dag en eitt mark er bæting, vonandi höldum við hreinu í næsta leik á móti KR,”  hélt hann áfram hikandi en bætti svo við: “Það verður samt erfitt, þeir eru með ágætt lið. En þetta er allt að koma til,” sagði Gummi að lokum.

 “Heilt yfir að undanskildum kannski fyrstu 10 mínútunum,  þá vorum við sterkari og sigurinn var sannfærandi,” sagði Gunnlaugur Jónsson við síðuna eftir leik. “Við lögðum mikla áherslu á það í dag að þétta varnarleik liðsins, ekki bara hjá öftustu fjórum heldur alls liðsins og mér fannst þeir bregðast virkilega vel við því, við vorum mjög grimmir og þá sérstaklega á seinni boltann, við vorum ekki að spila gegn auðveldu liði svo okkur tókst vel til í dag,” sagði Gulli ánægður og hélt áfram: “Dan kom mér virkilega á óvart á fyrstu tveim æfingunum hans, ég held að hann hafi ekki verið rétt spilaður hjá Gróttu í fyrra þar sem hann spilaði fyrir aftan senterinn, en þetta er bara ekta "striker" af gamla skólanum og þetta er bara það sem koma skal, “ sagði Gunnlaugur sáttur að lokum