Úr leiknum í kvöld. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrsti æfingaleikur vetrarins fór fram seint í kvöld í Boganum. Andstæðingarnir voru Húsvíkingar sem létu gríðarlega
snjókomu og alvöru íslenskt vetrarveður ekki aftra sér frá því að taka bíltúr hingað og leika fótbolta við
góðar aðstæður.
KA 4 - 1 Völsungur
1-0 Jón Heiðar Magnússon
2-0 Jakob Hafsteinsson
2-1 Völsungur
3-1 Davíð Jónsson
4-1 Jóhann Örn Sigurjónsson
Liðið sem Gunnlaugur lét hefja leik:
Sandor
Haukur Heiðar - Janez - Haukur Hinr. - Víkingur*
Jakob - Túfa - Davíð R - Jón Heiðar
Ómar
Arnór Egill
* Víkingur Hauksson: Tvítugur vinstri bakvörður sem lék með Draupni í sumar. Lék í yngri flokkum KA
á árum áður.
KA-menn byrjuðu leikinn af nokkrum krafti og stjórnuðu gangi mála fyrstu tuttugu mínúturnar. Boltinn fékk að rúlla manna á milli í
rólegheitum og nokkrir skemmtilegir spilkaflar litu dagsins ljós en alltaf vantaði að ná þessari margfrægu úrslitasendingu til að komast í
alvöru færi.
Helst ber að nefna ágætt færi sem Jón Heiðar fékk þegar hann fékk boltann utarlega í teignum með fínan tíma en
Steinþór í marki gestanna varði. Einnig átti Davíð Rúnar fínt skotfæri en honum brást bogalistin.
Nokkrum mínútum áður en Sverrir Pálmason dómari leiksins flautaði til hálfleiks komust KA-menn yfir. Þar var að verki Jón Heiðar
Magnússon sem var frískur á kantinum í fyrri hálfleiknum.
Boltinn barst til hans í teignum, hann náði að snúa sér og setti boltann í netið. 1-0 í hálfleik.
KA-liðið sem byrjaði síðari hálfleik, tvær breytingar:
Sandor
Sigurjón - Haukur Hei. - Haukur Hinr. - Víkingur
Jakob - Steinn G - Davíð R - Jón Heiðar
Ómar
Janez
Síðari hálfleikur byrjaði ágætlega líkt og sá fyrri en Völsungar náðu þó nokkrum köflum þar sem þeir
héldu KA liðinu full aftarlega á vellinum og mátti heyra Gulla á bekknum kalla sína menn framar á völlinn.
Leikurinn opnaðist mikið í seinni hálfleik, líklega þar sem það er nóvember og margir mánuðir í að
Íslandsmótið hefjist og leikmenn liðanna í misjöfnu ásigukomulagi.
KA-menn bættu öðru marki við eftir flotta sókn þegar u.þ.b. klukkustund var liðin af leiknum. Jón Heiðar átti fyrirgjöf á
fjærstöngina þar sem Jakob skoraði með skalla, laglegt mark. Fáeinum mínútum síðar átti Ómar Friðriksson stangarskot og svo
strax í kjölfarið fengu Völsungar færi á hinum enda vallarins en Sandor var vakandi í markinu.
Þegar um tuttugu mínútur voru eftir fóru Janez og Ómar af velli og í þeirra stað komu Garðar Stefán sem er nýstiginn upp úr
2. flokki og Jóhann Örn Sigurjónsson. Garðar fór í vörnina og Haukur Heiðar á miðjuna og Jói beint í framlínuna.
Fljótlega eftir það kom Óskar Þór Jónsson inn á fyrir Jakob á hægri kantinn.
Völsungar gáfust ekki upp og fengu vítaspyrnu þegar fyrirgjöf þeirra hitti í hönd Sissa inni í teig. Sandor markmaður gerði sér
lítið fyrir og varði vítaspyrnuna og staðan því enn 2-0. Hann náði þó ekki að koma í veg fyrir að Völsungar
minnkuðu muninn fimm mínútum síðar. Vörn KA hafði verið nokkuð opin síðustu mínútur og nýttu Völsungar sér
það og skoruðu sitt fyrsta mark í leiknum af nokkru harðfylgi.
Gulli lét þá inn nýja menn af bekknum. Jón Heiðar fór út og Andrés nokkur Vilhjálmsson inn fyrir hann. Haukur Hinriksson fór
út og Ásgeir Vincent Ívarsson(nýgenginn upp úr 2.) kom inn í bakvörð og Sissi færðist í miðvörðinn. Einnig kom
Davíð Jónsson inn fyrir Víking Hauksson í bakverðinum og svo tók Aksentije Milisic stöðu Davíðs Rúnars á miðjunni.
Nokkuð miklar breytingar á liðinu og skömmu eftir það fengu Völsungar dauðafæri en skot þeirra rétt fram hjá stönginni.
Fáeinum mínútum síðar skoruðu KA-menn síðan en þar var Davíð Jónsson að verki þegar hann laumaði boltanum fram
hjá Steinþóri í markinu og staðan orðin 3-1.
KA-menn voru ekki hættir og skoruðu þeir fjórða markið sitt eftir flotta sókn sem endaði með fyrirgjöf frá Andrési inn á
Jóhann Örn sem skoraði.
Úrslit 4-1 í ágætis leik hjá KA-mönnum þegar á heildina er litið. Gunnlaugur náði sigri í fyrsta leik og allir fengu
fínan spiltíma. Mikið var um breytingar og hrókeringar á vellinum enda Gunnlaugur að kynnast strákunum í liðinu og mjög stutt
síðan æfingar hófust.