Umfjöllun: Þróttur R. - KA

Umfjöllun um leik KA gegn Þrótti Reykjavík á Valbjarnarvelli í gærkvöldi sem endaði með 1-0 tapi í leik þar sem KA liðið náði aldrei að sýna sínar réttu hliðar.




Þróttur R. 1 - 0 KA
1-0 Hjörvar Hermannsson (7)

Ein breyting var á liðinu frá tapleiknum gegn Haukum í síðustu umferð en Guðmundur Óli var á bekknum og Steinn Gunnarsson byrjaði sinn fyrsta leik í sumar á miðjunni fyrir Húsvíkinginn.

Sandor

Haukur He - Hafþór - Boris - Jakob
Andrés - Steinn - Davíð R - Hallgrímur
Elvar Páll
Dan Howell



Varamenn: Guðmundur Óli(Steinn G., 46. mín), Davíð Örn Atlason, Arnór Egill Hallsson, Ómar Friðriksson(Elvar Páll, 83. mín), Sigurjón Fannar Sigurðsson, Magnús Blöndal, Fannar Hafsteinsson(M).

Þegar fréttaritari labbaði í stúkuna á Valbjarnarvelli í gærkvöldi voru allar aðstæður í Laugardalnum til fyrirmyndar fyrir fótboltaleik. Ágætlega hlýtt var í veðri, fánarnir á hornfánunum hreyfðust nánast ekki og lítilsháttar rigning hafði verið rétt áður en leikurinn hófst. Völlurinn sjálfur leit síðan prýðilega út úr stúkunni.

Ein besta marktilraun KA í leiknum kom rétt eftir að leikurinn var flautaður á en Elvar Páll átti gott skot sem Trausti Sigurbjörnsson í marki Þróttara átti í erfiðleikum með og náði að verja í horn.

Það sást strax í byrjun hvernig leikurinn myndi þróast en heimamennirnir í Þrótti lágu aftarlega á vellinum og leyfðu KA að spila boltanum á milli sín á miðjunni og upp kantana en þegar þangað var komið freistuðu þeir þess að ná boltanum og beita skyndisóknum.

Uppleggið hjá Páli Einarssyni þjálfara Þróttara virtist virka vel því á sjöundu mínútu unnu þeir boltann af KA-mönnum og sendu stungusendingu fram hjá Hafþóri, sem var ekki langt frá því að ná að koma tánni í boltann, inn á Hjörvar Hermannsson sem var einn á auðum sjó og skoraði gegn Sandor í markinu.

Leikurinn hélt áfram á sömu nótum, það má segja að KA hafi stjórnað leiknum án þess að skapa sér neitt. Sóknaraðgerðirnar voru of hugmyndasnauðar og hægar. Þróttararnir fengu hættulegustu færin í hálfleiknum en á 17. mínútu var mark dæmt af þeim vegna rangstöðu og skömmu seinna misstu KA-menn boltann illa á miðjunni og tveir Þróttarar splúndruðu vörninni en náðu á ótrúlegan hátt að klúðra færinu þegar þeir voru komnir tveir gegn Sandor með varnarmenn KA á hælunum.

Haukur Heiðar fór upp kantinn og átti margar fyrirgjafir en annað hvort voru of fáir inni í teig eða menn mættir of snemma svo það var vont að eiga við boltana en fyrirliðinn átti reyndar eina skemmtilega sendingu inn fyrir á Elvar Pál sem var í góðri stöðu en fyrsta snertingin brást honum - góð mótttaka og Elvar hefði verið einn á móti markmanni.

Andrés fékk síðan fínt færi eftir gott samspil úti á hægri kantinum en Trausti gerði vel í að loka og verja. Þetta voru bestu sóknartilraunir KA í fyrri hálfleik þrátt fyrir að vera mun meira með boltann og hafa nægan tíma inni á miðsvæðinu. Það vantaði að menn hefðu sjálfstraust í að keyra á varnarmennina og valda usla, gera óvænta hluti og brjóta leikinn upp því Þróttararnir lágu aftarlega. Það var svekkjandi að horfa upp á það því það er vitað mál að strákarnir geta það svo sannarlega og hafa sýnt það í sumar, t.d. gegn ÍR í Boganum og svo í síðari hálfleik gegn HK.

Staðan 1-0 þegar menn gengu til búningsherbergja en rétt áður en flautað var til hálfleiks var annað mark dæmt af Þrótturum vegna rangstöðu en þá höfðu Þróttarar verið nokkuð aðgangsharðir í vítateig KA-manna eftir horn.

Í hálfleik kom Guðmundur Óli inn fyrir Stein Gunnarsson en allt annað var eins, leikurinn líka. Þróttararnir rólegir aftarlega á vellinum og KA með boltann en eins og í fyrri hálfleik vantaði hugmyndaflug í sóknarleikinn.

Sóknirnar komu enn að mestu leyti upp hægri vænginn þar sem Andrés og Haukur voru líflegir en aldrei náðist að skapa mjög mikla hættu eftir fyrirgjafirnar sem voru fjölmargar í leiknum. Elvar Páll fékk besta færi KA í seinni hálfleik þegar hann skallaði rétt fram hjá en það voru ekki fleiri færi hjá KA sem ég punktaði hjá mér.

Aftur á móti voru Þróttararnir skeinuhættir í skyndisóknunum og fengu nokkur úrvalsfæri eftir að hafa unnið boltann á hættulegum stöðum hjá KA sem voru farnir mjög framarlega á völlinn og ætluðu að freista þess að jafna leikinn.

Það gekk því miður ekki og því tóku Þróttarar öll stigin sem í boði voru. Sigur þeirra var sanngjarn, þeir fengu betri færi en KA í leiknum þrátt fyrir að vera töluvert minna með boltann en eins og áður segir þá var sóknarleikurinn of fyrirsjáanlegur hjá KA. Það vantaði einstaklingsframtökin frá leikmönnum á borð við Hallgrím Mar og Andrés sem eru nauðsynleg gegn liðum sem liggja eins aftarlega og Þróttararnir gerðu.

Það er samt alls ekki hægt að segja að neinn hafi verið að spila illa í leiknum, langt frá því, það var aftur á móti enginn að spila nægilega vel sóknarlega til að ná að brjóta Þróttarana á bak aftur. Það virtist vera að menn treystu of mikið á félagann og að hann myndi gera hlutina, of fáir vildu vera með boltann og gera árás. Það vantaði þetta margumtalaða "extra" sem menn þurfa að finna djúpt í vopnabúrinu sínu fyrir næsta leik - það er til staðar og menn búa yfir því.

Næsti leikur er gegn Fjölni á heimavelli og er ég viss um að strákarnir eru staðráðnir í að nota þann leik til að koma sér aftur á beinu brautina eftir tvo tapleiki í röð núna. Þetta er flott lið sem náði sér ekki almennilega á strik á Valbjarnarvellinum og vonandi ná þeir að sýna sitt rétta andlit gegn Fjölnisliðinu.