Upphitun: Grótta - KA

Næsti leikur KA verður á gervigrasvellinum á Seltjarnarnesi,  gestgjafar okkar
Grótta.



Lið Gróttu er sem stendur í 12 og seinasta sæti deildar með 9 stig þeir hafa skorað  15 mörk en fengið á sig 21 mark.  Heimaleikur okkar gegn þeim sem fram fór á Þórvellinum sælrar minningar lauk með jafntefli 1 – 1 eins og fólki er eflaust í fersku minni og var það Haukur Hinrikssons sem skoraði mark okkar.   Þau úrslit þóttu nokkuð sanngjörn samkvæmt umsögn því þrátt fyrir að við værum meira með boltann áttu gestirnir hættulegri færi.

Grótta er með ágætlega mannað lið og þeir gefa ekki þumlung eftir, reynsluhestar í bland við yngri eikmenn og ljóst að við þurfum að eiga góðan leik ætli menn sé að fylgja eftir ágætis gengi í s.l. leikjum.  Lið Gróttu eru taplausir í seinustu þremur leikjum með einn sigur (gegn Njarðvík) og tvö jafntefli ( Þrótt og ÍR). 
Grótta leikur heimaleiki eins og áður sagði á gervigrasvelli sem reyndar er mjög góður eftir því sem þeir sem best til þekkja segja.
Ekki hefur heimavöllurinn þrátt fyrir gervigrasið verið þeir sérlega fengsæll það sem af er sumri því einungis þrjú stig hafa þeir haft uppúr heimaleikjum.  
Samk.v tölfræði úr leikjum Gróttu eru þeir hættulegastir á 62 mín til 80 mín því þeir hafa skorað sjö af mörkunum sínum fimmtán á þessum tíma. 
Grótta er það lið í 1. deild sem næst flest gul spjöld hafa fengið eða 34. Leikmenn þeirra hafa þó bara einu sinni litið það rauða. Með þessu er ekki verið að halda fram að leikmenn Gróttu séu grófir bara að benda á að þessi kappar berjast.

Góður gangur hefur verið á okkar liði í seinustu leikjum og uppskeran hefur í framhaldi af þvi aukist.  Pikkari telur ljóst að leiki okkar lið af eðlilegri getu ættum við að taka öll stigin með okkur heim.  Sigur í þessum leik færir okkur ofar á töfluna og við stefnum auðvita uppá við.

Meiðslalisti okkar er í lengri kantium Jan, Túfa, Haukur Heiðar, og Guðmundur Óli ásmat auðvitað Nobba eru allir frá og Deano tekur út leikbann eftir rauða spjaldið í leikum gegn Þrótti s.l. laugardag.. 
Klisjan segir okkur að maður komi í manns stað. Þessi ágæta klisja er sönn og  ljóst að menn frá tækifæri og ekki efast ég um að slíkt tækifæri nýta menn vel..

Dómari leiksins sem hefst kl 16 verður Þórður Már Gíslason, honum til aðstoðar Birkir Sigurðsson og Ingi Fannar Eiríksson.

Eins og alltaf,  þá væntum við þess að þeir KA-menn sem tök hafa á mæti á leikinn og hvetji liðið til sigurs í leik sem verður að teljast mikilvægur fyrir framhaldið hjá okkur.

Áfram KA

GN