27.07.2010
Næstu gestir okkkar er IR en þeim hefur gengið vel það sem af er móti og verið í hópi efstu liða, enda mat margra að þeir
ásamt Víkingum hafi á að skipa sterkasta hópnum sem í þessari deild er.
Lið þeirra hefur reyndar aðeins verið að draga lappirnar í seinustu umferðum en náðu sér þó vel á strik gegn Njarðvík
í seinustu umferð. ÍR hefur unnið 6 leiki gert 5 jafntefli og tapað 2 skorað 23 – fengið á sig 20. Fyrri leik okkar gegn
þeim lauk með sigri ÍR 2-1 en það var Stubbs sem skoraði mark okkar .
Við fáum í þessum leik kjörið tækifæri til þess að sýna hvað er í KA spunnið, getum mokað vonbrigðum
sl. laugardags frá okkur. Við vitum að liðið getur svo miklu, miklu, meira og það væri miklu mun skemmtilegra að fara í stutt frí
með þrjú stig í húsi heldur en hitt.
Stuðningur áhorfenda hefur verið mjög góður í seinustu heimaleikjum og það er gott. Við væntum þess að
fólk fjölmenni því stuðningur er gulls í gildi á þessum tímum.
Lekurinn hefst kl 19 og hann dæmir Þóroddur Hjaltalín jr., honum til aðstoðar verða Valdimar Pálsson og Auðunn Steinn
Sigurðsson. Eftirlitsmaður KSI verður Guðmundur Heiðar Jónsson.
Áfram KA
GN