Upphitun: KA - Njarðvík

Sandor var maður leiksins í síðasta leik
Sandor var maður leiksins í síðasta leik
Það verða Njarðvíkingar sem verða næstu gestir okkar á Akureyrarvelli heimavelli KA og er leikurinn sá 15 sem við leikum í 1 deild á þessu tímabili.

Gerstirnir eru í neðsta sæti deildar sem aðeins 11 stig eð hafa verið að leika ágætlega í seinustu leikjum þannig að ljóst er að ekkert hálfkák dugar gegn þeim.  Fyrir lok félagsskiptaglugga um sl. helgi fengu þeir svo liðstyrk þegar þrír leikmenn gengu til liðs við félagið.  Fyrri leik liðana lauk með jafntefli 1-1.   Deano skoraði mark okkar í seinni hálfleik.

Ef maður skoðar hvernig Njarðvík hefur vegnað á útivelli í sumar má sjá að þeir hafa aðeins skorað þrjú mörk en fengið á sig fimmtán, einn sigur er uppskeran sem þeir hafa náð á ferðalögum þeirra.  Við höfum leikið sjö leiki heima,  unnið þrjá, gert þrjú jafntefli,  og tapað einum skorað fjórtán mörk fengið á okkur ellefu.  Vandamál okkar hefur verið að ná að leggja svokölluð lakari lið (með fullri virðingu fyrir þessum svokölluðu lakari liðum) í sumar og því skal það undirstrikað að vanmat er eitthvað sem við höfum ekki leyfi til að leika okkur með og munum ekki gera.

Leikur okkar gegn ÍR á dögunum var vel leikinn, skemmtilegur og nú er að fylgja þeim glæsilega sigri eftir og halda stigasöfnun okkar áfram.  Pikkari trúir því staðfastlega  eins og reyndar Alli Palli og Erlingur bendir á í frábærum skrifum í ummælakerfi síðu okkar að KA hafi mannskap til þess að leggja öll lið í 1 deild af velli, og við eigum að vinna gesti okkar en það gerist ekki ókeypis og því verða menn að leggja á sig, gefa allt og þá verður hægt að fagna í leikslok.

Pikkari slá á þráðinn til Sandor fyrirliða og spurði hann útí leikinn gegn Njarðvík.  ,, Við höfum byrjað seinni umferðina vel og leikirnir gegn Þrótti og ÍR voru ágætir af okkar hálfu´´.  ,,Leikurinn gegn  Njarðvik er hinsvegar lykil leikur fyrir okkur,  sigur í honum og ég trúi að við getum verið í hópi fimm efstu liða tap og við erum í veseni.´´ 
Hvernig er ástand leikmanna eftir frí ?  ,,Ástandið er mjög  gott, við höfum æft vel og menn komu ferskir til baka´´.  ´´Ég er mjög bjartsýnn á framhaldið og veit að spilum við eins og við getum þá vinnum við Njarðvík,, sagði Sandor að lokum.
Við viljum minna á eins og kemur fram á síðu okkar að boðið verður til KA veislu fyrir leikinn en nú þarf að nota Pósthúsið því Bryggjan rúmaði ekki fjöldan sem mætti fyrir leikinn gegn  ÍR.
Leikurinn hefst kl 14 og hann mun Guðmundur Ársæll Guðmundsson dæma, honum til aðstoðar verða Haukur Erlingsson og Jóhann Helgi Sigmarsson.  Eftirlitsmaður KSÍ Gretar Guðmundsson.
Áfram KA !