Upphitun og viðtal: KA-Haukar!!!

Synir Doktors munu syngja og þú mátt syngja með!
Synir Doktors munu syngja og þú mátt syngja með!
Á morgun (fimmtudag) fær KA lið Hauka í heimsókn. Leikurinn verður í Boganum en ekki á Þórsvelli eins og ætlað var og er að vegna þess að eina æfingasvæði sem KA-menn geta notfært sér nú um stundir er Boginn og því best að spila þar. ALLIR ÆTTU AÐ MÆTA OG GERA SÉR GLAÐAN DAG Í HÓPI KA-MANNA!! frítt fyrir 16 ára og yngri en 1000 kr fyrir aðra.


KA sýndi það og sannaði um síðustu helgi að uppgjöf er ekki möguleiki, eftir að hafa vaknað af værum blundi 3-1 undir í hálfleik gegn HK, smá hárblásararæðu og hver veit nema skóm hafi verið sparkað, komu þeir út í seinni hálfleikinn og kláruðu HK-inga 4-3 þar sem Blikinn Elvar Páll skoraði 3 gegn sínum erkifjendum. KA er sem stendur í 2. sæti deildarinnar tveimur stigum frá ÍA sem er á topnum. Liðið hefur skorað 7 mörk sem er það mesta sem lið hefur skorað á þessu tímabili og 3 mörk fengin á sig.

Haukar eins og margir vita féllu úr Pepsi-deildinni síðasta haust og eru töluverðar breytingar á liði þeirra síðan þá.  Meðal annars skiptu þeir um þjálfara í apríl þegar Andri Marteinsson yfirgaf skipið fyrir gamlan draum hjá Víkingi og við tók við hinn viðkunnalegi Magnús Gylfason, oft kenndur við Pepsi mörkin. Meðal þeirra leikmanna sem hurfu á braut í vetur voru Arnar Bergmann Gunnlaugsson og Guðjón Pétur Lýðsson sem voru þeirra bestu menn í fyrra. En liðið er sterkt og er með 6 stig eftir 3 umferðir


Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA býst við hörkuviðreign

“Þeir hafa byrjað sterkt þetta mót, unnið bæði Víking Ólafsvík á útivelli og ÍR á heimavelli. Komnir með nýjan þjálfara sem hristi upp í hlutunum í vetur þannig að ég býst við hörkuviðureign gegn góðu liði. Þrátt fyrir að hafa misst marga góða leikmenn eru þeir með góða leikmenn fyrir og hafa einnig fengið góðan liðsstyrk. Við þurfum að vera tilbúnir í mikinn slag.”

Ástandið á hópnum er mjög gott og aðeins þeir Srdjan Tufegzic og Jón Heiðar Magnússon sem ekki eru leikfærir.

Eins og fyrr segir kom KA liðið heldur betur til baka í HK-leiknum og það hlýtur að gefa mönnum smá innspýtingu “Svo sannarlega gefur þetta innspýtingu en það er líka mikilvægt að menn dragi lærdóm af andleysinu sem gerði vart við sig eftir draumabyrjun í fyrri hálfleik. Ef menn halda að það þýði að vera á hálfum hraða í þessari deild þá færðu að finna fyrir því.”

Mikið vesen hefur verið að finna æfingasvæði fyrir liðið á grasi og því var ekki unnt að spila leikinn á Þórsvelli, en það hefur engin áhrif á hópinn, að sögn Gunnlaugs.  “Nei, hópurinn hefur tekið fagmannlega á þessum hræringum öllum og við höfum náð að fókusa á það sem skiptir máli, leikina og okkar spilamennsku. Vil hrósa strákunum fyrir það.”

Kannski er það til góðs að spila í Boganum og hentugt fyrir bæði lið því Haukarnir spila sýna heimaleiki einnig á plasti. “Já, það held ég, þeir spila sína heimaleiki á gervigrasi og bæði lið æfa allan veturinn á gervigrasi þannig að liðin þekkja það vel.  Aðalatriðið er að aðstæður fyrir góðan fótboltaleik eru til staðar.”

Og að lokum vill Gulli sjá fólk mæta á völlinn og styðja sýna menn. “Nú er mikilvægt að fá fleira fólk á leikina, það styttist í að við förum á AKureyrarvöll og þrátt fyrir að Boginn er kannski ekki með góðar aðstæður fyrir áhorfendur þá er mikilvægt fyrir strákana að þeir finni stuðning og fólk fylki sér bakvið liðið.”