Vangaveltur Gunnars Níelssonar eftir tap gegn Þór og fleira

Frá leiknum sl. fimmtudagskvöld
Frá leiknum sl. fimmtudagskvöld
Eins og fólk veit lék KA gegn Þór sl. fimmtudag á Þórsvellinum og við töpuðum 3-0.
Það má segja að umfjöllun um þennan leik á þessum tímapunkti eigi ekki mkið erindi og því mun ég ekki fara úti í lýsingar í smáatriðum, tel að það sé í raun óþarfi.
Vissulega hefði ég átt að skila af mér fyrr en annir við það að fagna frábæru veðri gerði það að verkum að ég hef eki komið mér til verka fyrr og skal hér beðist forlást á því.

KA liðið var svona skipað í upphafi leiks gegn Þór:
Sandor, Haukur H, Jan, Haukur Hinrikss, Maggi Blö, Túfa, Stubbs, Andri, Gummi, Deano, og David.
Inná komu Orri og Sissi fyrir Túfa og David.

     Tölurnar segja tap 3-0 og þær ljúga ekki en það var vissulega ekki þannig að við ættum ekki okkar færi en því miður tókst ekki að nýta þau og því fór sem fór.  Benda má á að skömmu áður en Þór skorar sitt fyrsta mark skall hurð mjög nærri hælum við mark þeirra.
Nánast á sömu mín og þeir skora sitt  þriðja,  í raun markið sem kláraði leikinn bjarga þeir á línu með ótrúlegum hætti.  Fram að þessu  þriðja marki marki hafði leikurinn í seinni hálfeik verið allur inna vallarhelmingi Þórsara.   Mér fannst í raun bara spurning um það hvenær við næðum að skora og í kjölfarið snúa leiknum okkur í vil. 
Mörk Þórsara voru skelfilega ódýr  en kannksi segja að þau hafi komið eftir dugnað og seiglu þeirra, eða bara dæmigerð mörk fyrir lið sem er með skottið uppi gegn liði sem er ekki svo mikið með skottið uppi! 

     Það sem skildi á milli sl. fimmtudag var vil ég meina dugnaður leikmanna Þórs en þeir hafa náð langt í sumar með dugnaði.   Fótbolti þeirra er ekki flókinn enda er þessi leikur í raun einfaldur.  Menn mega ekki gleyma að hlutirnir gerast nokkurð hratt í þessum leik og rétt að minnast að fyrir réttu ári voru Þórsara í mjög áþekkri stöðu og við erum í dag.  Mikil umræða var í þeirra herbúðum um vondan þjálfara, ekki nógu góða leikmenn ónýta stjórn.s.frv..  Það er nokkurn veginn það sama og heyrist sagt um okkur í dag. 
Fyrir mína parta og annara sem að okkar liði koma get ég sagt að auðvitað vildum við sjá KA liðið í annari stöðu í dag en raun ber vitni.  Vissulega eru allir hvort sem það eru þjálfarar, leikmenn, stjórnarmenn, eða stuðningsmenn svekktir með það hvernig fór í sumar.
 
     Ég hef líka bölvað bæði í hljóði og líka upphátt vallaraðstæðum okkar í sumar og það er mín skoðun að þær hafi ekki hjálpað til.  Við leikum fyrsta eiginlega heimaleik okkar 18 júní höfðum neyðst til þess að spila tvo leiki á Þórvellinum. 
Æfingasvæðið okkar kom ekki vel undan vetri, mfl. fékk sína fyrstu æfingu á heilum velli í júlí slíkt hjálpar ekki.  Æfingasvæðið þarf lagfæringar svo hægt sé að taka á móti þeim mikla fjölda barna og unglinga sem vilja æfa með KA það er ljóst,  einnig er þátttaka í N1 móti og Arsenalskóla eitthvað sem þrýstir á þessar úrbætur.
Dreen á Akureyrarvelli er þannig að sá völlur mun og getur ekki nýst okkur sem æfingavöllur án þess að hann breytist fljótt í eitthvað annað en boðlegan keppnisvöll í fótbolta.  Ak-völlur verður því ekki notaður sem æfingasvæði  m.v óbreytt ástand það fer ekki milli mála.  Það er skoðun mín að KA sé í dag 20 árum á eftir Þór þegar við skoðum æfingaaðstöðu yfir sumarmánuðina og slíkt gengur ekki upp til lengdar.   Væl segja einhverjir, gott og vel það breytir ekki því að þetta er mín skoðun. 
Elsta æfingasvæði Þórsara er nokkurra ára og þarf ekki að velta fyrir sér gæðamun vs. okkar svæði.  Afgangurinn af svæði þeirra var svo tekið upp í tengslum við  gerð hins nýja og glæsilega leikvangs sem við heimsóttum sl. fimmtudag.  Þar er allt eins og best má vera.

    Nú fer í hönd merkilegur tími  í fótboltanum hjá KA, leikmenn og þjálfarar með lausa samninga og við þurfum að skoða hvernig málum verður best komið hjá okkur.  Einnig á samkv. samningi sem aðalstjórn KA og þáverandi meirihluti í bæjarstjórn gerðu snemma sl. vor að fara í umfangsmiklar framkvæmdir í stúku  á Ak-velli nú í haust.  Miða þær framkvæmdir að því að gera húsið boðlegt að innan sem utan,  mun þegar lokið verður við þær komið mannvirki sem nýta má við  mörg tækirfæri, ekki bara fótbolta.

Haustið er líka tími kjaftasögunar og auðvitað eru þær líka sagðar  um KA. 
Ein og sú magnaðasta er t.d sú að Guðjón Þórðasson sé að fara að taka við KA liðinu.  Rétt er að nota þetta tækifæri til þess að  taka af öll tvímæli með það að stjórn  knattspyrnudeildar KA hefur EKKI rætt við Guðjón, alls ekki.

     Þrátt fyrir vonbrigði með þetta tímabil er ekki nokkurn bilbug á okkur að finna og við munum halda áfram að gera það sem við teljum best fyrir félagið.  Megum heldur ekki gleyma því sem vel er gert en stundum hættir okkur til þess. 
Get nefnt sem dæmi að mikil aukning er á fjölda iðkenda hjá okkur í yngri flokkum á tímum þar sem svo auðveldlega hefði verið hægt að reikna með samdrætti vegna hins erfiða efnahagsástands sem er í þjóðfélaginu og legst með þunga á heimili.   Það er mjög ánægjulegt að foreldrar skuli telja KA heppilegan kost til þess að sjá um íþróttaiðkun barna sinna, það ber starfinu gott vitni. 
Einnig má minnast á frábært framtak Unglingaráðs í sambandi við Arsenalskólann sem fram fór í sumar og svo það sem ég tel vera helstu skrautfjöður í bæjarlífinu ár hvert.  N1 mót knattspyrnudeildar.  Mótið sem Guðjón Guðmundsson íþróttarfréttamaður á Stöð 2 sport kallaði,, Móðir allar móta hér á landi”!!
    
Þetta mót dregur árlega þúsundir manna til bæjarins, fólk sem kemur hingað og skilur eftir mikinn virðiskauka fyrir samfélagið.  Þeir dagar sem mótið stendur yfir  kalla EKKI á auka kostnað  fyrir löggæslu, auka vaktir á sjúkrahúsi, eða hreinsun á miðbænum fyrir allar aldir.  Þetta er eins gott dæmi um frábæra ferðamennsku og hægt er að hugsa sér.  Enginn aukakostnaður fyrir Ak-bæ,  skilar hinsvegar skólum bæjarins verulegum fjárhæðum frá okkur í formi greiðlsu á húsaleigu vegna gistingar keppenda.  Stundum þykir mér sem við hér í þessum bæ gerum okkur ekki grein fyrir því hve mikils virði þetta mót er, ekki bara fyrir fótbolta í KA heldur fyrir samfélagið allt.  Það má til sanns vegar færa að við séum heldur ekki nógu dugleg að benda á þetta (kannksi er líka óþolandi að þess þurfi eftir öll þessi ár)

 Það er skoðun mín að knattspyrnudeild KA sé ekki  þyggjandi við erum í þessu allt annað en það. 

Áfram KA

Gunnar Níelsson