Bergur Sverrisson með tvö Íslandsmet á HM

KA maðurinn Bergur Sverrisson gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet í snörun og samanlögðu í -85kg flokki karla á HM í ólympískum lyftingum sem fer fram í Ningbo í Kína.

Bergur keppti í D-riðli 85 kílóa flokksins á HM í dag. Keppendum er raðað eftir styrkleika í riðla, þeir bestu keppa í A-riðli og svo koll af kolli. D-riðillinn var fyrstur og Bergur gerði vel þar.

Hann bætti Íslandsmet sitt í snörun þegar hann snaraði 135 kílóum. Hann lyfti svo 158 kílóum í jafnhendingu og lyfti því samanlagt 293 kílóum sem er Íslandsmet í samanlögðu í þyngdarflokknum.

Bergur var í 4. sæti af 10 keppendum í D-riðlinum, en keppni í öðrum riðlum stendur enn yfir og enn óljóst í hvaða heildarsæti hann endar í þyngdarflokknum.

Frábær árangur hjá Bergi sem hefur verið einn fremsti ólympíski lyftingamaður landsins undanfarin ár og óskum honum innilega til hamingju.