Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri um helgina en lyftingadeild KA sá um umsjón mótsins og heppnaðist mótið ákaflega vel.
Fjölmargir keppendur spreyttu sig á mótinu en lyftingadeild KA átti fjóra fulltrúa en það voru þau Viktor Samúelsson, Drífa Ríkarðsdóttir, Harpa Rut Þórlaugsdóttir og Heiðrún Frímannsdóttir. Stóðu þau sig öll einkar vel og getur deildin verið einkar stolt bæði af framkvæmd mótsins sem og uppskerunni.
Viktor Samúelsson setti nýtt Íslandsmet í -120kg flokki þegar hann lyfti 321 kg og var það þyngsta lyfta dagsins. Hann bætti þar sitt eigið Íslandsmet en lyftan tryggði honum bæði sigur í -120kg flokki sem og í heildarstigakeppninni. Viktor átti frábæran dag en hann hóf keppnina á að lyfta 280kg og því næst 310kg áður en kom að þriðju og síðustu lyftunni þar sem hann bætti Íslandsmetið. Hann virkaði einkar öruggur í sínum aðgerðum og til alls líklegur að bæta metið enn frekar á næstunni.
Drífa Ríkarðsdóttir sýndi og sannaði enn og aftur að hún er ein besta lyftingakona landsins en hún lyfti 180kg og vann þar með sigur í -63kg flokki auk þess sem hún vann sigur í heildarstigakeppninni. Ekki nóg með það að þá vann Drífa einnig í keppni með búnaði en þar lyfti hún 155kg en hún var hársbreidd frá því að lyfta meiri þyngd í báðum keppnum en gripið sveik hana og klárt að Drífa mun bæta enn frekar við afrekaskrána sína í náinni framtíð.
Harpa Rut Þórlaugsdóttir gerði gríðarlega vel í +84kg flokki en hún jafnaði Íslandsmetið í flokknum sem Hulda Sigurjónsdóttir setti nokkrum mínútum áður er hún lyfti 135kg. Harpa varð í öðru sæti á eftir Huldu og ljóst að það verður spennandi að fylgjast með framgöngu hennar á komandi mótum.
Að lokum gerði Heiðrún Frímannsdóttir afar vel í -84kg flokki en hún náði öllum sínum lyftum löglegum en hún byrjaði á að taka 95kg, því næst 105kg og kláraði svo 115kg með glæsibrag. Það var gríðarlega hörð keppni í flokknum sem Heiðrún keppti í en Elsa Pálsdóttir setti nýtt Íslandsmet er hún tryggði sér sigurinn.
Frábær árangur hjá okkar öflugu keppendum en auk þess stóð KA uppi sem sigurvegari í liðakeppni kvennamegin. Við óskum þeim Viktori, Drífu, Hörpu og Heiðrúnu innilega til hamingju með árangurinn sem og lyftingadeild KA til hamingju með gríðarlega vel heppnað mót.