Íris Hrönn Bikarmeistari í bekkpressu

Íris Hrönn Garðarsdóttir varð Bikarmeistari í bekkpressu um helgina og bætti þar enn einni skrautfjöður í hatt Lyftingadeildar KA. Allar þrjár lyftur Írisar voru gildar en mest lyfti hún 125kg.

Mótið um helgina bar nafnið Menningarbikarinn og var keppt í klassískri bekkpressu og með búnaði. Íris keppti í því síðarnefnda. Mótið fór fram á Kjarvalsstöðum í frábæru umhverfi og var hluti af Menningarnótt í Reykjavík.

Fjöldi manns fylgdist með en öll keppnisgjöld runnu í Minningarsjóð Bryndísar Klöru Birgisdóttur.

Við óskum Írisi innilega til hamingju með þennan frábæra árangur og verður áfram spennandi að fylgjast með framgöngu hennar.