Lyftingadeild KA blæs til sóknar og kynnir nýja unglingatíma í lyftingum. Til að fagna upphafinu og nýjum þjálfara verður FRÍTT í tímana út febrúar.
Þetta er kjörið tækifærið fyrir ungmenni á Akureyri að læra undirstöðuatriði lyftinga í hvetjandi umhverfi. Markmiðið er að bjóða upp á fjölbreytta tíma þar sem farið er í helstu atriði kraftlyftinga og ólympískra lyftinga. Tímarnir hefjast þriðjudaginn 10. febrúar og stendur önnin út maí. Allir eru velkomnir og engin sérþekking eða reynsla nauðsynleg.
Kynnum nýjan þjálfara: Sigurbjörn Bjarnason
Það er mikill fengur fyrir deildina að fá Sigurbjörn Bjarnason (Sibba) til liðs við sig. Sigurbjörn er þrítugur tveggja barna faðir, nýgiftur og alinn upp í sveit. Sibbi flutti ungur að heiman til að reyna fyrir sér í fótbolta. Hann segist sjálfur hafa verið í frekar slöku standi sem ungur leikmaður, fékk nóg af því og varð hreinlega heltekinn af styrktarþjálfun.
Sá áhugi leiddi hann út í kraftlyftingar, sem hann stundaði af krafti í rúm fimm ár, og síðar í faglega þjálfun. Hann er með Diploma í styrktarþjálfun (S&C) frá Keili og er Level 1 og 2 vottaður í Training for Warriors (TFW). Sem stendur leggur hann stund á háskólanám í kennarafræðum.
Reynsla sem telur
Sibbi hefur þjálfað stöðugt síðustu fimm ár; fyrst sem styrktarþjálfari hjá yngri flokkum KA í handbolta og hjá TFW Akureyri. Síðastliðin þrjú og hálft ár hefur hann borið ábyrgð á því að leikmenn meistaraflokks Þór/KA séu í toppstandi til að keppa við þau bestu á landinu.
Sibbi brennur fyrir öllu sem viðkemur heilsu og hefur prófað flest – allt frá því að ganga berfættur á fjöll yfir í að teipa fyrir munninn í svefni!
„Mín uppáhalds lyfta er klárlega hnébeygjan. Það er ekki til sanngjarnari dómari á getu en hnébeygjan,“ segir Sigurbjörn léttur í bragði.
Lyftingatímar:
· Hvenær: Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 14:30 – 15:30.
Við hvetjum alla á unglingastigi til að nýta tækifærið í febrúar og koma og prófa!