Vel heppnuð mót hjá Lyftingadeild KA

Sumarmót Lyftingasambands Íslands fór fram um síðastliðna helgi í frábærri umgjörð Lyftingadeildar KA. Í frétt á heimasíðu LSÍ segir meðal annars: “Óhætt er að segja að mótahaldið hafi verið til fyrirmyndar, skipulagið var gott og fagleg vinnubrögð einkenndu mótið frá upphafi til enda.”

Rós í hnappagat Lyftingadeildarinni þar.

Keppnin sjálf var sterk og mikil spenna á mótinu. Heildarúrslit má sjá hér á heimasíðu LSÍ.

Tveir KA-menn voru stigahæstir í karlaflokki, þeir Viktor Jóhannes Kristófersson og Arnar Bjarki Kristjánsson. Lyftingafélag Reykjavíkur var hins vegar í sérflokki kvennamegin og hneppti þrjú efstu sætin.

Á mótinu var keppt í snörun (snatch) og jafnhendingu (clean & jerk). Þá voru reiknuð út svokölluð Sinclair stig, en það er formúla sem tekur nákvæma líkamsþyngd keppandans og heildarþyngdina sem hann lyfti og reiknar út stig. Því hærri sem Sinclair stigin eru, þeim mun betri er árangurinn miðað við eigin líkamsþyngd.

Stigahæstu keppendur í karlaflokki

Í karlaflokki sáust gríðarlega flottar lyftur þar sem Viktor Jóhannes Kristófersson tryggði sér efsta sætið með glæsilegum árangri.

1. Viktor Jóhannes Kristófersson (KA)

· -110 kg, 130/162 = 292 kg og 329,4 Sinclair stig

2. Tindur Eliasen (Lyftingafélag Reykjavíkur)

· -88 kg, 120/138 = 258 kg og 319,4 Sinclair stig

3. Arnar Bjarki Kristjánsson (KA)

· -88 kg, 104/137 = 241 kg og 295,7 Sinclair stig

Stigahæstu keppendur í kvennaflokki

Kvennamegin var keppnin sömuleiðis jöfn og spennandi þar sem Freyja Björt Svavarsdóttir fór með sigur af hólmi eftir harða baráttu.

1. Freyja Björt Svavarsdóttir (Lyftingafélag Reykjavíkur)

· -58 kg, 64/90 = 154 kg og 214,1 Sinclair stig

2. Steindís Elín Magnúsdóttir (Lyftingafélag Reykjavíkur)

· -69 kg, 72/95 = 167 kg og 208,7 Sinclair stig

3. Valdís Brynjarsdóttir (Lyftingafélag Reykjavíkur)

· -77 kg, 82/93 = 175 kg og 207,0 Sinclair stig

Í liðakeppni varð KA í þriðja sæti, en Lyftingafélag Reykjavíkur fór með sigur af hólmi og Lyftingafélag Kópavogs hreppti annað sætið. Fimm lið kepptu.

Sjá nánari upplýsingar og fleiri myndir á heimasíðu LSÍ hér

Æfinga- og byrjendamót KRAFT á Akureyri

Samhliða sumarmóti LSÍ fór fram æfinga- og byrjendamót KRAFT laugardaginn 23. maí, einnig í Íþróttahöllinni. Mótið var einnig lágmarkamót, þar sem keppendur gátu náð lágmörkum fyrir stórmót. Góður hópur tók þátt – sumir að stíga sín fyrstu skref í kraftlyftingum en aðrir lengra komnir.

Dómarapróf fyrir nýja landsdómara KRAFT var haldið samhliða mótinu. Lesið próf var fyrr um morguninn og verklegi hlutinn fór fram á mótinu sjálfu. KRAFT eignaðist einn nýjan landsdómara í kjölfarið, Írisi Hrönn Garðarsdóttur.

Stigahæstu keppendur

Klassískar kraftlyftingar

· Guðrún Heiða Hjaltadóttir (STJ)

· Aron Friðrik Georgsson (STJ)

Kraftlyftingar með búnaði

· Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran (KFR)

· Davíð Þór Penalver (MAS)

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu KRAFT hér