Badmintonæfingar hefjast í dag

Tennis og badminton
Badmintonæfingar hefjast í dag
Badminton er frábær hreyfing sem hentar öllum

Badmintonæfingar á vegum Spaðadeildar KA hefjast á ný í dag klukkan 18:00 í sal Naustaskóla. Það hefur verið mikill uppgangur í badmintonstarfinu undanfarin ár og því gríðarlega jákvætt að við getum nú hafið æfingar á ný.

Við hvetjum alla hressa krakka á aldrinum 5-16 ára til að mæta og hafa gaman í þessari stórskemmtilegu íþrótt. Næsta æfing er svo á miðvikudaginn kl. 18:30 í Naustaskóla.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is