Fyrsti leikur í úrslitunum í kvöld!

Blak

KA og Afturelding mætast í fyrsta leiknum í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna í KA-Heimilinu í kvöld klukkan 20:00. Vinna þarf þrjá leiki til að hampa titlinum og ljóst að gríðarlega mikilvægt er að byrja einvígið á sigri.

Stelpurnar okkar hafa átt stórkostlegt tímabil en þær eru Meistarar Meistaranna, Deildarmeistarar og Bikarmeistarar á núverandi tímabili og eiga aðeins þann stærsta eftir. Við þurfum klárlega á ykkar stuðning að halda til að taka forystu í einvíginu og verja heimaleikjaréttinn.

Hvetjum alla sem geta til að mæta í KA-Heimilið í kvöld og taka þátt í stemningunni, áfram KA!

Ef þið komist hinsvegar ekki á leikinn verður hann í beinni á KA-TV í boði Errea, Valor, Bílaleigu Akureyrar og Finnur ehf.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is