3. flokkur KA/Þór í úrslitakeppninni um helgina

3. flokkur KA/Þór leikur um helgina í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn.  Liðið leikur á laugardag kl. 13:00 við Stjörnuna í undanúrslitum og síðan á sunnudag annað hvort um 3. sætið eða 1. sætið.  Allir leikirnir fara fram í Víkinni.
Komið og hvetjið stelpurnar ef þið eruð stödd á höfuðborgarsvæðinu.