KA/Þór hefur borist ansi góður liðsstyrkur fyrir næsta handboltavetur en hin færeyska Agatha Kjærbek Djurhuus skrifaði í dag undir tveggja ára samning við félagið.
Agatha sem er 19 ára gömul er afar efnilegur línumaður sem hefur þrátt fyrir ungan aldur verið í lykilhlutverki í meistaraflokksliði VB frá árinu 2022. Hún kemur frá Vági og hefur alla sína tíð verið hjá staðarliðinu VB, Vágs Bóltfelag. Hún hefur verið fastamaður í yngrilandsliðum Færeyja og hefur auk þess verið að banka fast á dyr hins öfluga A-landsliðs sem vann meðal annars 35-30 sigur á liði Íslands á dögunum.
Agatha skrifar eins og áður segir undir tveggja ára samning við KA/Þór og verður virkilega spennandi að fylgjast með henni í svarta búningnum næsta vetur og bjóðum við hana hjartanlega velkomna í KA/Þór!