Þá er komið að síðasta heimaleik Akureyrar á þessu ári og það er enginn smáleikur. Haukar, topplið N1 deildarinnar kemur
í heimsókn og engum blöðum um að fletta að þetta er einn af stórleikjum deildarinnar.
Undanfarin ár hafa leikir Akureyrar og Hauka dregið að sér flesta áhorfendur í deildarkeppninni hér í Íþróttahöllinni og
viðbúið að sama staða verði uppi í kvöld.
Lið Akureyrar hefur verið að finna sig betur og betur í undanförnum leikjum og er skemmst að minnast sigursins á Fram í síðustu umferð.
Haukaliðið hefur smollið mjög vel saman í vetur og hefur þægilega forystu á toppi N1 deildarinnar og á þó einn leik til góða,
gegn nágrönnum sínum í FH. Nú síðast völtuðu Haukarnir yfir bikarmeistara Vals í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar, unnu ellefu
marka sigur á þeim í Vodafonehöllinni þannig að við getum verið viss um að Akureyrarliði þarf á öllu sínu að halda
í kvöld.
„Þetta er liðið sem er búið að spila langbest í allan vetur og þetta verður örugglega hörkuleikur. Þarna mætast tvö
lið á góðu róli,“ segir Atli Hilmarsson þjálfari Akureyrar í spjalli við Vikudag. „Þeir hafa verið svakalega stapílir
og hafa komið mjög sterkir inn. Þetta er lið sem er gott varnarlega og sóknarlega og hefur þess utan tvo frábæra markmenn. Þeir eru núna
að springa út þessir ungu strákar og hafa líka fengið góða menn til liðs við sig þótt þeir hafi misst menn líka,“
segir Atli.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:00 en Höllin verður opnuð klukkan 18:15 og að sjálfsögðu verða hefðbundnar veitingar fyrir leik í
stuðningsmannaherberginu.
Leikurinn verður í beinni textalýsingu hjá okkur hér á síðunni.
Smelltu hér til að fylgjast með lýsingunni.
Auk þess verður leikurinn sýndur beint á
SportTV.is, þú getur fylgst með
útsendingunni með því að
smella hér.
Jólagjöfin í ár – Akureyrarkönnur og glös
Minnum á nýju könnurnar og glösin. Oft vantar eitthvað smávegis til að bæta í jólapakkana og nú er einmitt komin tilvalin
tækifærisgjöf. Kanna eða glas með merki Akureyrar Handboltafélags. Eftir leik Akureyrar og Hauka í kvöld verða glösin og könnurnar til
sölu í Íþróttahöllinni og kostar stykkið 1.000 krónur.

