Allt undir í lokaleiknum fyrir jól í dag

Handbolti
Allt undir í lokaleiknum fyrir jól í dag
Strákarnir ætla sér stigin tvö í dag!

KA tekur á móti Fjölni í síðustu umferð Olís deildar karla í handbolta fyrir jólafrí í dag klukkan 17:00. Það má með sanni segja að leikurinn sé skólabókardæmi um fjögurra stiga leik en fyrir leikinn er KA liðið með 9 stig í 8.-9. sæti en Fjölnismenn eru í fallsæti með 5 stig.

KA liðið getur því með sigri komið sér sex stigum frá Fjölni og á sama tíma komið sér í betri stöðu í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Eftir leik dagsins verða aðeins 8 umferðir eftir í deildinni og er hvert einasta stig farið að verða gríðarlega mikilvægt.

Það er ekki spurning að við þurfum á þínum stuðning að halda í dag og er um að gera að hita vel upp fyrir jólahátíðina með skemmtilegri stemningu í KA-Heimilinu klukkan 17:00 í dag, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is