Andri, Daði og Jón Heiðar framlengja um 2 ár

Handbolti
Andri, Daði og Jón Heiðar framlengja um 2 ár
Haddur formaður handknd. með köppunum þremur

Handknattleiksdeild KA framlengdi í kvöld samninga sína við þá Andra Snæ Stefánsson, Daða Jónsson og Jón Heiðar Sigurðsson. Þetta er stórt skref í undirbúningi næsta tímabils en allir þrír voru í lykilhlutverki í liði KA sem tryggði sér nýverið áfram þátttökurétt í deild þeirra bestu.

Samningarnir við þá félaga eru allir til tveggja ára og ljóst að þeir eru svo sannarlega áfram klárir í að leggja sitt að mörkum í þeirri vegferð að koma KA aftur í toppbaráttuna í íslenskum handbolta.

Andri Snær sem leikur í vinstra horni verður 33 ára síðar í mánuðinum og er fyrirliði liðsins. Hann lék alla 23 leiki KA í vetur og gerði í þeim 35 mörk, þar af 22 úr vítaköstum.

Daði lék lykilhlutverk í varnarleik KA, hvort sem var 6-0 eða í 3-2-1 afbrigði KA varnarinnar og spilaði alla leiki vetrarins. Daði lék litla sókn en gerði engu að síður fjögur mörk í vetur, uppskar 23 brottvísanir en ekkert rautt spjald.

Jón Heiðar stýrði sóknarleik liðsins en hann missti einungis af tveimur leikjum í vetur. Hann átti ófáar stoðsendingarnar í vetur auk þess sem hann gerði 36 mörk. 

Það eru frábærar fréttir að halda þessum mögnuðu köppum innan okkar raða, ekki nóg með að þeir eru allir öflugir leikmenn þá eru þeir líka með stórt KA hjarta. Þessir samningar eru skýr skilaboð að áfram er stefnan hjá félaginu að byggja á góðum liðsanda og flottri stemningu, hvort sem er innan eða í kringum liðið.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is