Andri Freyr til liðs við KA

Andrarnir tveir sáttir við undirritunina
Andrarnir tveir sáttir við undirritunina

Andri Freyr Friðriksson er genginn í raðir KA á láni frá Aftureldingu en Andri Freyr er 19 ára örvhentur hornamaður. Andri er metnaðarfullur og efnilegur leikmaður sem mun klárlega koma sterkur inn í lið okkar KA-manna fyrir komandi handboltavetur.

Andri er mjög góður slúttari í horninu og er auk þess öflugur hraðaupphlaupsmaður og alvöru keppnismaður. Andri Freyr er nú þegar mættur norður og búinn að taka nokkrar æfingar með liðinu.

Andri Snær Stefánsson þjálfari KA er afar ánægður með komu nafna síns í liðið, "Við erum virkilega ánægðir með að fá Andra Frey í KA liðið okkar. Andri er metnaðarfullur og efnilegur leikmaður sem mun klárlega hjálpa liðinu. Að sama skapi er ég afskaplega ánægður með þessa samvinnu við Aftureldingu, enda er um mikið þroskatækifæri að ræða fyrir ungan handboltamann að flytja til Akureyrar."

"Andri er heilsteyptur strákur sem smellpassar í okkar lið, hefur æft með okkur að undanförnu og er tilbúinn í slaginn með KA. Við erum með mikinn metnað í handboltanum okkar og verður gaman að vinna með Andra."

Við bjóðum Andra Frey hjartanlega velkominn í KA og hlökkum til að sjá til hans á vellinum þegar handboltinn fer aftur að rúlla í byrjun september.