12.10.2013
Nú um helgina fer fram 1. umferð Íslandsmóts karla og kvenna í 6. flokki í handknattleik. Leikið er í KA-heimilinu og
Íþróttahúsi Síðuskóla. Úrslit fram að hádegi laugardags
og leikjaniðurröðun má sjá hér.
11.10.2013
Nú hafa bæði sport.is og handbolti.org valið úrvalslið 4. umferðar Olís-deildar kvenna og er ánægjulegt að frammistaða stelpnanna
í KA/Þór gegn Haukum hefur vakið athygli. Erla Hleiður Tryggvadóttir er línumaður umferðarinnar að áliti beggja miðlanna og sport.is
velur Mörthu Hermannsdóttur miðjumann eða leikstjórnanda umferðarinnar.
08.10.2013
KA/Þór gerði sér lítið fyrir í kvöld og vann frábæran sigur á Haukum, 25-24, í KA-heimilinu. Leikurinn var í
járnum nánast allan tímann en lið KA/Þór var sterkara á lokasprettinum.
07.10.2013
KA/Þór mætir Haukum í KA-heimilinu á morgun, þriðjudag, í KA-heimilinu. Frítt er á völlinn og hefst leikurinn klukkan 18.30.
Síðast þegar stelpurnar spiluðu í KA-heimilinu unnu þær stórsigur á Aftureldingu fyrir framan ríflega 300 áhorfendur.
Það er því um að gera að mæta á völlinn til þess að hvetja stelpurnar, enda um mikilvægan leik að ræða.
KA/Þór tapaði naumlega á laugardaginn fyrir Gróttu en með smá heppni hefði sá leikur unnist.
Við viljum minna á að enn er hægt að kaupa ársmiða og eru þeir seldir á staðnum. Þeir kosta 5000kr stykkið og innifalið
í því er kaffi og kökur í hálfleik.
06.10.2013
Meistaraflokkur KA/Þór hélt suður á Seltjarnarnes á laugardaginn þar sem þær mættu sterku liði Gróttu. Grótta komst
í úrslitaleik bikarkeppninnar í fyrravetur og er spáð 5. sæti í Olís-deildinni í vetur á sama tíma og KA/Þór er
spáð neðsta sætinu.
Leikurinn var í miklu jafnræði til að byrja með, Grótta þó með frumkvæðið. Um miðjan fyrri hálfleikinn komst
KA/Þór yfir með góðum leikkafla. Grótta komst þó aftur yfir og leiddi í hálfleik 13-11.
06.10.2013
Fimmti flokkur drengja hjá KA gerði sér lítið fyrir og bar sigur úr bítum á fyrsta fjölliðamóti flokksins í vetur. A-lið
KA sigraði í fyrstu deild eftir hörkubaráttu við þrjú önnur félög. B-lið félagsins stóð sig einnig mjög vel en
tapaði naumlega úrslitaleik í 3. deild. Það er því ekki amaleg byrjun á vetrinum að vinna 1. umferð Íslandsmóts og eiga
drengirnir töluverða möguleika að verða Íslandsmeistarar þegar upp verður staðið í lok vetrar og ekki er ólíklegt að
B-liðið vinni sig upp um deild.
02.10.2013
Það er komið að öðrum heimaleik Akureyrar Handboltafélags í Olís-deildinni. Að þessu sinni eru það nýliðarnir í
deildinni, Vestmannaeyingar sem mæta til leiks eftir fimm ára fjarveru úr efstu deild.
Leiktíminn og dagurinn er óvenjulegur að þessu sinni og því skal ítrekað að leikurinn hefst klukkan 13:30 eða hálftvö á
laugardaginn.Ástæðan er sú að Eyjamenn þurfa að komast heim áður en flugvöllurinn í Eyjum lokar.