Ari Valur Atlason í raðir KA

Jón Heiðar Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar KA og Ari Valur Atlason
Jón Heiðar Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar KA og Ari Valur Atlason

Handknattleiksdeild KA hefur borist góður liðsstyrkur en Ari Valur Atlason hefur skrifað undir eins og hálfs árs samning við félagið.

Ari Valur sem er tvítugur er spennandi vinstri skytta sem mætir norður frá FH og ÍH. Ari Valur er þó KA maður í húð og hár en hann hóf yngriflokkaferilinn hjá KA áður en hann hélt suður en faðir hans er enginn annar en Atli Sveinn Þórarinsson sem flestir KA menn ættu að þekkja vel til eftir frábæran knattspyrnuferil. Atli sneri einnig heim í KA á dögunum er hann tók við sem afreksþjálfari knattspyrnudeildar og er magnað að fá þá feðga aftur norður í gult og blátt.

Ari Valur er afar spennandi leikmaður sem er bæði öflugur í vörn og sókn. Undanfarin tvö ár hefur hann barist við erfið meiðsli en hefur sýnt mikinn karakter að koma sér aftur af krafti inn á völlinn og gerði meðal annars 51 mark í 13 leikjum með liði ÍH í vetur.

Við bjóðum Ara Val hjartanlega velkominn heim og erum spennt að sjá hann koma inn í okkar öfluga KA-lið.