Arnór Ísak framlengir um tvö ár

Jón Heiðar Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar og Arnór Ísak ánægðir við undirritunina í dag
Jón Heiðar Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar og Arnór Ísak ánægðir við undirritunina í dag

Arnór Ísak Haddsson skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn út tímabilið 2027-2028. Eru þetta afar jákvæðar fréttir en Arnór sem er 23 ára gamall leikstjórnandi er uppalinn hjá KA og má með sanni segja að hann lifi fyrir KA.

Arnór Ísak steig snemma sín fyrstu skref í meistaraflokki KA eftir að hafa verið í sigursælum árgang í yngriflokkastarfi félagsins. Hann hefur nú leikið 153 keppnisleiki fyrir KA í deild, bikar og evrópu en Arnór er sérstaklega óhlífinn leikmaður sem leggur sig ávallt allan fram og hikar ekki við að keyra á minnstu opnanir í vörn andstæðingsins. Þá sýndi hann í vetur að hann er einnig klár í enn stærra hlutverk í öflugum varnarleik liðsins og klárt að Arnór á framtíðina fyrir sér og afar jákvætt að hann sé búinn að skrifa undir nýjan samning við KA.

Auk þess að leika með liði KA hefur Arnór einnig verið í lykilhlutverki í þjálfun yngriflokka hjá félaginu þar sem hann er að skila frábæru starfi. Þá er hann einnig mikill félagsmaður og alltaf til í að leggja sitt af mörkum í vinnu í kringum félagið og ómetanlegt fyrir KA að njóta krafta þessa öfluga kappa.

Þá hefur Arnór einnig leikið fjölmarga landsleiki fyrir yngrilandslið Íslands þar sem hann hefur keppt bæði á EM og HM. Handknattleiksdeild KA hefur á undanförnum árum byggt upp öflugt og stöðugt efstudeildarlið á ungum KA mönnum og verður áfram gaman að fylgjast með okkar flotta liði með Arnór Ísak í fararbroddi.