Aron Daði Stefánsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út tímabilið 2026-2027. Þetta eru afar jákvæðar fréttir en Aron er gríðarlega efnilegur leikmaður sem hefur verið brjóta sér leið inn í meistaraflokkslið KA undanfarin ár.
Aron Daði sem er fæddur árið 2007 leikur iðulega sem leikstjórnandi en hann hefur afar gott auga fyrir spili auk þess sem hann er góður skotmaður.
Hann hefur verið afar sigursæll í yngriflokkum KA og undanfarin ár hefur hann verið að brjóta sér leið inn í meistaraflokkslið KA en á síðustu leiktíð var hann níu sinnum í leikmannahópi liðsins. Á sama tíma lék hann lykilhlutverk í liði 3. flokks sem og ungmennaliði KA.
Aron Daði er ákaflega spennandi leikmaður sem getur náð gríðarlega langt haldi hann rétt á spilunum. "Við erum einstaklega ánægðir að Aron hafi skrifað undir framlengingu á samning sínum við KA. Hann er flinkur leikmaður sem á eftir að verða enn betri, alvöru KA-maður. Það er unnið gott starf í yngriflokkunum hjá okkur og hlökkum við til að gefa honum tækifæri á gólfinu í vetur til að springa út í gula búningnum" segir Andri Snær, þjálfari KA.