Bergrós Ásta með tvo sigra í Færeyjum með U19

Bergrós stóð heldur betur fyrir sínu í Færeyjum
Bergrós stóð heldur betur fyrir sínu í Færeyjum

Bergrós Ásta Guðmundsdóttir leikmaður KA/Þórs var í eldlínunni með U19 ára landsliði Íslands í handbolta á dögunum sem lék tvo æfingaleiki við Færeyinga en leikið var í Færeyjum.

Fyrri leikur liðanna fór fram á laugardaginn og vann íslenska liðið 25-26 sigur eftir að jafnt hafði verið 12-12 í hálfleik. Bergrós átti afbragðs leik og var markahæst í liði Íslands með 5 mörk.

Liðin mættust svo aftur á sunnudeginum og aftur var um hörkuleik að ræða. Færeyjar leiddu 10-8 í hálfleik en íslenska liðið sneri leiknum sér ívil í þeim síðari og vann 21-23 sigur. Bergrós stóð aftur fyrir sínu og gerði 3 mörk í leiknum.