Bjarni Ófeigur Valdimarsson framlengdi í dag við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn út veturinn 2027-2028. Eru þetta ákaflega jákvæðar fréttir enda má fullyrða að Bjarni Ófeigur sé búinn að vera besti leikmaður Olísdeildarinnar í vetur.
Bjarni sem er 27 ára gamall er að leika sitt annað tímabil með KA og var hann þriðji markahæsti leikmaður Olísdeildarinnar með 147 mörk auk þess að vera langflestar stoðsendingar í deildinni eða 122 talsins. Ekki nóg með að fara fyrir sóknarleiknum þá er Bjarni algjör lykilmaður í öflugum varnarleik KA liðsins, þess má geta að Bjarni var lengi vel markahæsti leikmaður deildarinnar en vegna meiðsla á fingri missti hann af nokkrum leikjum.
Bjarni mætti norður frá þýska liðinu GWD Minden fyrir síðasta vetur en þar áður lék hann í þrjú ár með sænska stórliðinu IFK Skövde en Bjarni lék ákaflega vel með sænska liðinu þar sem hann var í hópi bestu manna liðsins öll þrjú tímabilin en liðið lék meðal annars tvívegis til úrslita um sænska meistaratitilinn, árin 2021 og 2022.
Fyrir framgöngu sína með KA í vetur var Bjarni valinn í 35 manna hóp íslenska landsliðsins fyrir EM í janúar þar sem Ísland endaði í 4. sæti. Þá var hann kallaður inn í landsliðið á EM í Ungverjalandi árið 2022 þar sem Ísland endaði í 6. sæti. Þar áður var Bjarni fastamaður í yngrilandsliðum Íslands.
Það er gríðarlega sterkt að Bjarni sé búinn að skrifa undir nýjan samning við handknattleiksdeildina en KA liðið hefur verið að stíga stór skref fram á við í vetur. Strákarnir tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni og voru þar örfáum sekúndum frá því að tryggja sér heimaleikjarétt en enduðu að lokum í 5. sæti deildarinnar, þá fór KA liðið alla leiðina í úrslitahelgi bikarkeppninnar. Framundan er hörkueinvígi gegn ÍBV í úrslitakeppninni en fyrsti leikur fer fram í Vestmannaeyjum 25. mars næstkomandi og þá mætast liðin í KA-Heimilinu sunnudaginn 29. mars. Ef til oddaleiks kemur fer hann fram þann 2. apríl í Vestmannaeyjum.
Það er klárt að við munum halda áfram að byggja upp okkar öfluga lið og algjört lykilskref í því er að halda Bjarna áfram innan okkar raða og erum við ansi spennt að halda áfram að fylgjast með framgöngu þessa magnaða kappa í gula og bláa búningnum.
