Bjarni og Sólveig best á lokahófi handboltans

Glæsilegum handboltavetri var slaufað með pompi og prakt
Glæsilegum handboltavetri var slaufað með pompi og prakt

Lokahóf handknattleiksdeildar fór fram á leynilegum stað í miðbæ Akureyrar í gærkvöldi en þar fögnuðu karlalið KA og kvennalið KA/Þórs flottum vetri.

Strákunum var spáð fallbaráttu en voru allt tímabilið í toppbaráttu og fóru að lokum í undanúrslit úrslitakeppninnar auk þess að komast í bikarúrslitahelgina. Stelpurnar í KA/Þór komu upp í Olísdeildina sem nýliðar og skutu sérfræðingum einnig ref fyrir rass með því að vera ekki nálægt því að falla og tryggja sæti í úrslitakeppninni auk þess að komast í bikarúrslitahelgina.

Bjarni Ófeigur Valdimarsson og Sólveig Lára Kristjánsdóttir voru kjörin bestu leikmenn liðanna en Bjarni átti stórkostlegan vetur í gula og bláa búningnum en hann var í vetur valinn besti leikmaður Olísdeildarinnar en hann var næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar og sá stoðsendingahæsti. Sólveig Lára sýndi enn og aftur hve magnaður íþróttamaður hún er en hún er algjör lykilmaður í sterkum varnarleik KA/Þórs og í vetur gerði hún enn betur því hún lék einnig stærra hlutverk í sóknarleik liðsins og dreif liðsfélaga sína áfram.

Jens Bragi Bergþórsson og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir voru valin efnilegustu leikmenn liðanna en þrátt fyrir ungan aldur hafa þau bæði verið í lykilhlutverki í meistaraflokki undanfarin ár og stigu þau bæði stórt skref fram á við í vetur. Það má með sanni segja að framtíðin sé þeirra og verður áfram spennandi að fylgjast með framgöngu þeirra á vellinum.

Séra Haraldur Bolli Heimisson og Anna Þyrí Halldórsdóttir voru valin bestu liðsfélagarnir en Anna Þyrí sem er einhver mesti harðjaxl sem fyrirfinnst er einnig gríðarlega jákvæð og drífandi sem keyrir liðsfélaga sína áfram. Haraldur Bolli sem er liðsstjóri KA liðsins er kannski ekki enn að spila með liðinu en hann er engu að síður algjör lykilþáttur í liðinu en með jákvæðni sinni og dugnaði fær hann alla með sér í að gefa allt sitt fyrir liðið.

Einar Rafn Eiðsson, Dagur Gautason og Sólveig Lára Kristjánsdóttir spiluðu sinn 100. leik fyrir KA eða KA/Þór í vetur og voru þau heiðruð fyrir þann merka áfanga. Einar Birgir Stefánsson, hinn Danski, lék sinn 200. leik fyrir KA í vetur og var eðlilega heiðraður vel fyrir þann áfanga.

Að lokum var handboltastjörnuparið Einar Rafn Eiðsson og Unnur Ómarsdóttir kvatt með þökkum en eftir fimm ára veru fyrir norðan hafa þau ákveðið að flytja suður. Unnur sem er uppalin hjá KA/Þór lék í heildina 150 leiki fyrir liðið og varð Bikarmeistari er hún sneri aftur heim veturinn 2021-2022. Einar Rafn er kannski ekki uppalinn fyrir norðan en hefur alltaf haft gríðarlega sterkar taugar til KA og lék í heildina 116 leiki fyrir félagið en hann varð meðal annars tvívegis markakóngur Olísdeildarinnar í gula og bláa búningnum. Við þökkum þeim heiðurshjónum kærlega fyrir frábæra samveru undanfarin ár og bjóðum þau ávallt velkomin aftur norður.