Bruno Bernat hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og leikur því áfram með sínu uppeldisfélagi næstu árin. Bruno sem er 24 ára hefur heldur betur staðið fyrir sínu í marki KA liðsins undanfarin ár og nú er ljóst að áframhald verður á því.
Bruno kom af krafti ungur inn í markið í meistaraflokksliði KA veturinn 2020-2021 þar sem hann sýndi strax hve öflugur leikmaður hann er og verið í lykilhlutverki síðan. Hann hefur nú leikið 143 leiki fyrir KA í deild, bikar og evrópu. Hann hefur undanfarin ár verið með eina bestu hlutfallsmarkvörsluna í deildinni og þá lék hann á sínum tíma með U21 árs landsliði Íslands.
Við erum afar spennt fyrir því að halda Bruno áfram innan okkar raða en auk þess að vera frábær í markinu er Bruno þekktur fyrir frábærar sendingar upp völlinn sem hafa gefið fjölmörg mikilvæg hraðaupphlaupsmörk undanfarin ár. Þá er hann einnig mikill félagsmaður og vinnur ötullega í starfinu í kringum KA sem er ómetanlegt.