Dagur Árni snýr aftur heim!

Dagur Árni og Andri Snær þjálfari KA eru spenntir fyrir komandi vetri
Dagur Árni og Andri Snær þjálfari KA eru spenntir fyrir komandi vetri

Handknattleiksdeild KA barst í dag gríðarlegur liðsstyrkur þegar Dagur Árni Heimisson skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Dag Árna ættu allir KA menn að þekkja vel til en hann er einn efnilegasti leikmaður landsins og verður gríðarlega gaman að sjá hann aftur í gulu og bláu treyjunni.

Dagur sem er 19 ára gamall getur bæði leikið sem leikstjórnandi sem og skytta er hluti af hinum ógnarsterka 2006 árgangi KA en strákarnir töpuðu ekki leik í rúmlega tvö ár á yngriflokkaferli sínum er þeir hömpuðu öllum þeim titlum sem í boði voru á Íslandi áður en þeir urðu Partille Cup meistarar en þar lögðu þeir mörg af sterkustu liðum Norðurlandanna.

Dagur lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir KA veturinn 2021-2022 þá aðeins 15 ára gamall. Hann kom sér fljótlega í lykilhlutverk í liðinu og lék alls 76 leiki fyrir KA í deild, bikar og evrópu og var kjörinn besti leikmaður KA tímabilið 2024-2025 þá enn aðeins 18 ára gamall en hann var einnig valinn efnilegasti leikmaður liðsins. Hann var í kjölfarið seldur til Vals þar sem hann lék á síðasta tímabili en með Val varð Dagur Árni Íslandsmeistari sem og Deildarmeistari.

Þá er Dagur einnig fastamaður í yngrilandsliðum Íslands þar sem hann hefur heldur betur látið til sín taka. Hann var valinn í úrvalslið á EM með U18 ára landsliðinu þar sem Ísland endaði í 4. sæti og þá var hann einnig valinn í úrvalslið Opna Evrópumótsins í Gautaborg með U17 ára landsliði Íslands sem endaði mótið í 5. sæti.

Foreldrar Dags eru þau Heimir Örn Árnason og Martha Hermannsdóttir og þarf hann því ekki að leita langt í handboltahæfileikana en bæði hömpuðu þau Íslandsmeistaratitli með KA og KA/Þór. Rétt eins og foreldrarnir er Dagur með frábært hugarfar og hefur verið afar drífandi í kringum starf handknattleiksdeildar. Hann hlaut Böggubikarinn á 95 ára afmælisfögnuði KA en hann er veittur einstakling sem þykir efnilegur í sinni grein en er ekki síður sterkur félagslega og er til fyrirmyndar á æfingum og í keppni.

Jón Heiðar Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar var hæstánægður við undirritunina, "við erum afar stolt af því að fá okkar frábæra Dag aftur heim. Það er skýr stefna hjá okkur í KA að byggja okkar öfluga lið á KA kjarna sem keyrir á jákvæðri stemningu. Dagur Árni er einn efnilegasti leikmaður landsins og veit nákvæmlega út á hvað handboltinn fyrir norðan snýst um. Það er alvöru fjölskyldubragur á handboltanum hér í KA og alltaf gott þegar uppaldir leikmenn koma aftur heim og ítrekum við að dyrnar hjá okkur standa ávallt opnar. Það er komin virkilega skemmtileg dýnamík í hópinn hjá okkur og ekki spurning að við ætlum okkur áfram að stíga skref áfram og koma KA aftur í alvöru toppbaráttu."

Það eru stórkostlegar fréttir að Dagur Árni sé nú snúinn aftur heim og verður virkilega spennandi að fylgjast með honum og hinu öfluga KA liði á komandi leiktíð. KA steig stórt skref áfram á nýliðnu tímabili og ljóst að boginn er spenntur hærra fyrir komandi tímabil og er endurkoma Dags einn af lykilþáttum í þeirri vegferð.