Dagur Gautason framlengir samninginn á afmælisdaginn

Dagur ásamt Hadd formanni og Stefáni þjálfara
Dagur ásamt Hadd formanni og Stefáni þjálfara

Dagur Gautason skrifaði í hádeginu í dag undir tveggja ára framlengingu á samningi sínum við KA. Þetta eru frábær tíðindi en pilturinn er einmitt 18 ára í dag.

Dagur hefur spilað alla 15 leikina fyrir KA í Grill66 deildinni í vetur og skorað í þeim 60 mörk, ásamt því að spila gríðarlega stórt hlutverk varnarlega. Einnig spilar hann einnig stöku sinnum fyrir U-lið og 3. flokk félagsins.

Dagur er mjög efnilegur og eru KA-menn gríðarlega ánægðir að fá að njóta krafta hans að minnsta kosti út tímabilið 2020. Hann er frábær fyrirmynd, innan sem utan vallar og með gríðarlega stórt KA-hjarta.

Stefán Árnason, þjálfari KA, lýsti yfir mikilli ánægju með að Dagur skyldi skrifa undir þennan samning á afmælisdaginn sinn og hafði þetta um málið að segja:

"Það er mikið ánægjuefni að Dagur Gautason hafi skrifað undir þennan samning með okkur. Samningurinn er afar mikilvægur fyrir félagið og þá vinnu sem er í gangi. Við ætlum að búa til lið hérna hjá KA sem verður meðal bestu liða á Íslandi og sú staðreynd að Dagur sé tilbúinn að skuldbinda sig í það verkefni er gífurlega mikilvægur liður í þeirri vegferð."

Heimasíða KA óskar Degi bæði til hamingju með 18 ára afmælið og nýja samninginn.