Dagur Gautason til liðs við Stjörnuna

Handbolti
Dagur Gautason til liðs við Stjörnuna
Óskum Degi alls hins besta (mynd: Þórir Tryggva)

Dagur Gautason hefur gengið til liðs við Stjörnuna og leikur því í Garðabænum næsta handboltavetur. Dagur sem er tvítugur að aldri er uppalinn hjá KA og er einn efnilegasti handboltamaður landsins en hann er fastamaður í unglingalandsliði Íslands og var valinn efnilegasti leikmaður Olís deildarinnar á síðasta vetri.

Á nýliðnum vetri var Dagur markahæsti leikmaður KA með 85 mörk í 20 deildarleikjum. Hann hefur verið algjör lykilmaður í vinstra horninu og óskum við honum alls hins besta hjá Stjörnumönnum og þökkum honum kærlega fyrir hans framlag síðustu ár.

Hjá Stjörnunni hittir hann fyrir Patrek Jóhannesson sem mun klárlega hjálpa honum að bæta sig ennfrekar og morgunljóst að framtíðin hjá þessum öfluga kappa er björt.

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is