Daníel Örn Griffin til liðs við KA

Handbolti
Daníel Örn Griffin til liðs við KA
Við bjóðum Daníel velkominn í KA!

Daníel Örn Griffin skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild KA. Daníel, sem er 20 ára gamall, er öflugur örvhentur leikmaður sem getur bæði leikið sem skytta sem og í horninu. Auk þess er hann sterkur og góður varnarmaður.

Daníel gengur til liðs við KA frá ÍBV þar sem hann varð meðal annars þrefaldur meistari tímabilið 2017-2018 og lék þar mikilvægt hlutverk í liðinu. Þá lék hann með U-21 árs landsliði Íslands sem varð í 7. sæti á EM í Slóveníu í fyrra og er í hópnum sem undirbýr sig fyrir HM á Spáni sem fer fram í júlí.

Það er klárt að koma Daníels til KA mun styrkja liðið og ætlumst við til mikils af honum. KA hefur verið í góðri uppbyggingu sem hefur tryggt liðinu áframhaldandi veru í deild þeirra bestu og stefnan er að sjálfsögðu sett á að gera enn betur á komandi tímabili.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is