Davíð Svansson til liðs við KA

Handbolti
Davíð Svansson til liðs við KA
Velkominn í KA Davíð!

Davíð Hlíðdal Svansson er genginn til liðs við KA en þessi öflugi og reyndi markvörður verður liðinu til taks í vetur. Davíð þekkir handboltann út og inn en hann hefur leikið með Aftureldingu, Fram og nú síðast HK auk þess sem hann lék með Nøtterøy í Noregi.

Fyrsti leikur KA liðsins er á mánudaginn og er af stærri kantinum er liðið sækir Stjörnuna heim í 8-liða úrslitum Bikarkeppninnar. Davíð kemur inn í teymið okkar góða og er kominn með leikheimild ef á þarf að halda.

Auk þess að vera öflugur leikmaður þá hefur hann góða reynslu af því að þjálfa og mun eflaust koma til með að nýtast okkar ungu markvörðum vel að taka næstu skref en hinn 19 ára gamli Bruno Bernat kom af krafti inn í meistaraflokkslið KA undir lok síðustu leiktíðar og heldur vonandi áfram að taka mikilvæg skref fram á við í vetur.

Við bjóðum Davíð velkominn í KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is