Einar Rafn Eiðsson skrifaði í dag undir nýjan samning við handknattleiksdeild KA og verður nú spilandi aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og verður því Andra Snæ Stefánssyni þjálfara liðsins innan handar bæði innan sem utan vallar.
Einar Rafn sem er 35 ára gamall gekk í raðir KA fyrir tímabilið 2021-2022 og hefur heldur betur komið eins og stormsveipur inn í félagið. Einar sem er mikill markaskorari hefur tvívegis verið markakóngur deildarinnar sem leikmaður KA og einu sinni sem leikmaður FH. Þá jafnaði hann félagsmet KA þegar hann gerði 17 mörk gegn Gróttu þann 4. desember 2022 en metið á hann með Arnóri Atlasyni sem gerði 17 mörk í leik gegn Þór þann 11. nóvember 2003.
Ekki nóg með að hafa skilað sínu innan vallar að þá er Einar Rafn mikill félagsmaður og leggur mikinn metnað í umgjörð liðsins en hann var meðal annars einn af drifkröftunum í að taka búningsklefa liðsins í gegn og betrumbæta.
Það er afar sterkt að fá Einar inn í þjálfarateymið og verður gaman að sjá hvernig hann og Andri Snær vinna saman með spennandi KA lið á komandi vetri. Lagt verður upp með að spila á gildum KA og ljóst að kjarni liðsins verður byggður upp á öflugum KA mönnum og má með sanni segja að Einar Rafn sé búinn að sanna sig sem grjótharðan félagsmann á undanförnum árum. Það verður því spennandi að sjá hann í enn stærra hlutverki í vetur.