ÍBV - KA/Þór í dag - sýndur í beinni

Handbolti
ÍBV - KA/Þór í dag - sýndur í beinni
Krefjandi verkefni framundan hjá stelpunum

Núna klukkan 13:30 hefst leikur ÍBV og KA/Þórs í Olís deild kvenna sem átti að fara fram í gær. Leikurinn fer því fram á laugardag klukkan 13:30 en þetta er lokaleikur liðanna fyrir jólafrí í deildinni. Það má búast við mjög svo krefjandi leik enda er ÍBV með eitt besta lið deildarinnar og þá sérstaklega á heimavelli.

Lið KA/Þórs lagði af stað til Eyja í gær og óhætt að segja að það hafi verið langt og strang ferðalag.

Liðin áttust við í hörkuleik fyrr í vetur í KA-Heimilinu þar sem KA/Þór leiddi leikinn til að byrja með. Hinsvegar small vörn gestanna í lok fyrri hálfleiks og áfram í upphafi síðari hálfleiks sem varð til þess að þær stungu af og unnu að lokum 26-34 stórsigur.

Fyrir leikinn er ÍBV í 1.-2. sæti deildarinnar með 13 stig ásamt liði Vals en gríðarlega hörð barátta er um efstu fjögur sæti deildarinnar. KA/Þór kemur þar á eftir í 5. sætinu með 8 stig.

Leikurinn er sýndur beint á ÍBV-TV og hægt að fylgjast með honum með því að smella hér.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is