KA og KA/Þór sendu alls fjögur lið til leiks á Granollers Cup en það er skemmtilegt sumarmót í handbolta sem fer fram á Granollers á Spáni. Okkar lið gistu í strandbænum Santa Susanna sem er 45 mínútur frá Granollers og náðu krakkarnir okkar því að hvíla sig í sólinni á milli leikja og ekki skemmdi fyrir að stutt var í ströndina á gististaðnum góða.

3. flokkur karla endaði í 2. sæti í sínum riðli og tryggði sér þar með sæti í 8-liða úrslitum. Þar unnu strákarnir spennandi leik með einu marki og komust því áfram í undanúrslit. Í undanúrslitunum þurftu þeir því miður að sætta sig við eins marks tap gegn sterku liði frá Spáni. Leikurinn um 3. sætið var hörkuleikur sem endaði einnig með tapi og varð 4. sætið því niðurstaðan á mótinu sem er frábær árangur hjá strákunum. Sverre Andreas Jakobsson stýrir strákunum í 3. flokki.

4. flokkur kvenna hjá KA/Þór endaði í 2. sæti í sínum riðli eftir frábæra frammistöðu en stelpurnar töpuðu aðeins einum leik í riðlinum. Stelpurnar komust því áfram í 16 liða úrslit þar sem þær mættu öflugu spænsku liði sem þær töpuðu eftir flotta frammistöðu. Stefán Guðnason stýrir stelpunum en ekki skemmdi fyrir að KA goðsögnin Alfreð Gíslason leit við og studdi stelpurnar í baráttunni.

4. flokkur karla sendi tvö lið til leiks en hvorugu liði tókst að komast áfram úr riðlinum sínum þrátt fyrir fínar frammistöður. Eldra árs liðið endaði með 6 stig jafnt 3. sætinu í riðlinum en var með verri innbyrðisstöðu.

Strákarnir á yngra árinu enduðu með 5 stig í sínum riðli og sem dugði þeim í 4.sætið í sínum riðli. Þeir Arnór Ísak Haddsson og Haraldur Bolli Heimisson þjálfa strákana í 4. flokknum
Síðustu dagarnir á Spáni voru svo nýttir í að baða sig í sólinni og fara í vatnsleikjagarð en liðin okkar áttu svo sannarlega skilið að njóta sín eftir átökin á vellinum. Við óskum öllum liðunum til hamingju með góðan árangur og hlökkum til að fylgjast með þessum krökkum á næsta tímabili.