Frí hópferð á Valur - KA/Þór á sunnudag

Handbolti
Frí hópferð á Valur - KA/Þór á sunnudag
Klárum þetta saman! (mynd: Egill Bjarni)

KA/Þór vann frábæran 24-21 sigur á Val í fyrsta leik liðanna í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna í KA-Heimilinu í gær og getur því tryggt sér titilinn með sigri í öðrum leik liðanna að Hlíðarenda á sunnudaginn klukkan 15:45.

Stórkostlegur stuðningur ykkar í stúkunni átti klárlega stóran þátt í sigrinum í gær og það er alveg ljóst að stelpurnar þurfa aftur á okkur öllum að halda á sunnudaginn. Við bjóðum því upp á fría hópferð fram og til baka!

Brottför verður frá KA-Heimilinu klukkan 9:00 á sunnudeginum og svo farið heim beint eftir leik. Ferðin sjálf kostar 0 krónur en fólk verður sjálft að kaupa sér miða á völlinn í gegnum miðasöluappið Stubbur. Skráning í ferðina er bindandi. Gerum þetta öll saman og tryggjum KA/Þór Íslandsmeistaratitilinn!

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞIG Í HÓPFERÐINA


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is